Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. júlí 2026 06:33 Stjórn Brims samþykkti fyrr í sumar að kaupa öll hlutabréf í Lýsi á 20 milljarða króna. Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir kaup Brims hf. á Lýsi hf. en í ákvörðun stofnunarinnar segir að samrunin virðist ekki hafa í för með sér skaðleg útilokunaráhrif fyrir keppinauta félaganna. Málinu hafi þannig verið lokað á fyrsta fasa án frekari rannsóknar.
Stjórn Brims samþykkti í júní síðastliðnum að kaupa öll hlutabréf í Lýsi á 20 milljarða króna. Um var að ræða töluverða verðlækkun frá því að greint var frá því í september í fyrra að Brim hefði gert kauptilboð í Lýsi fyrir 30 milljarða. Endursamið var um verðið, meðal annars með tilliti til vaxtaberandi skulda. Samkvæmt ákvörðuninni segir að fyrirtækin hafi ekki talið samrunan munu hafa áhrif á samkeppni, enda væri markaðshlutdeild þeirra takmörkuð á viðkomandi mörkuðum og þau störfuðu að langmestu leyti á alþjóðlegum mörkuðum í samkeppni við stóra erlenda framleiðendur. Þá færu viðskipti með hráefni að stórum hluta fram á opnum fiskmörkuðum, aðgangshindranir væru litlar og keppinautar hefðu greiðan aðgang að öðrum birgjum og kaupendum, bæði hér á landi og erlendis. Samkeppniseftirlitið leitaði umsagna helstu keppinauta og viðskiptaaðila og gerðu viðkomandi ekki athugasemdir við samrunann. Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að samruninn væri fyrst og fremst lóðréttur og að virtri stöðu aðila á markaði, það er að segja takmarkaðri hlutdeild Brims í heildarafla og dreifðu framboði hráefnis, væri hvorki séð að samruni sameinaðs félags hefði getu til að útiloka keppinauta Lýsis frá hráefni né keppinauta Brims frá mikilvægum viðskiptavinum eða söluleiðum. Þá lægi fyrir að hluti viðkomandi hráefnis virtist þegar keyptur frá erlendum aðilum.
Brim Sjávarútvegur Kaup og sala fyrirtækja Samkeppnismál Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira