eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. ágúst 2026 15:01 eBay er eitt stærsta netmarkaðstorg heims þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta keypt og selt vörur. Fyrirtækið var stofnað árið 1995 í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Getty Netverslunarrisinn eBay hefur samþykkt að greiða hjónum í Massachusetts tæplega fimmtíu milljónir Bandaríkjadala, um sex milljarða íslenskra króna, í bætur eftir að fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins beittu þau skipulagðri áreitni og sendu þeim nafnlausar sendingar, meðal annars lifandi kakkalakka og köngulær, sorgarkrans og blóðuga svínagrímu.
David og Ina Steiner, sem reka vefsíðuna EcommerceBytes sem fjallar um um netverslunariðnaðinn, náðu endanlegri sátt við eBay í þessum mánuði eftir rúmlega sex ára málaferli. Samningurinn felur einnig í sér greiðslu upp á um milljarð króna til góðgerðarmála, svo sem samtaka sem verja tjáningarfrelsi. Engin þagnarskylda fylgir sáttinni. Ina Steiner sagði í tölvupósti til AP á þriðjudag að þau hjónin hefðu bæði verið sammála um að sáttin ætti að vera opinber, bæði sem fórnarlömb sem vildu koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig og sem blaðamenn sem tryðu á gagnsæi. Hún sagðist vona að málið yrði öðrum víti til varnaðar. Steiner-hjónin höfðuðu mál árið 2021 og sögðu eBay hafa reynt að hræða þau til að hætta gagnrýninni umfjöllun um fyrirtækið. Áreitnin hófst með hótunum í gegnum samfélagsmiðla en þróaðist yfir í póstsendingar á heimili hjónanna. Þangað bárust skordýr, sorgarkrans, blóðug svínsgríma og bók um hvernig á að lifa af missi maka. Einnig voru send klámblöð merkt David Steiner til nágranna þeirra og áform voru uppi um að koma GPS-staðsetningartæki fyrir á bíl þeirra. eBay baðst enn á ný afsökunar á hegðun fyrrverandi starfsmanna og sagði hana ranga og forkastanlega. Skipt hefði verið um forystu og verkferlar og siðareglur hertar síðan atvikin áttu sér stað árið 2019. Árið 2020 voru sjö fyrrverandi starfsmenn eBay ákærðir vegna málsins. Flestir játuðu sök og hlutu fangelsisdóma eða vist í stofufangelsi. Árið 2024 samþykkti eBay jafnframt að greiða þriggja milljóna dala sekt eða sem nemur tæplega fjögur hundruð milljónum króna samkvæmt samkomulagi við alríkisyfirvöld. Christopher Murphy, lögmaður Steiner-hjónanna, sagði að skortur á þagnarskyldu í sáttinni skipti miklu máli þar sem fyrirtæki reyndu oft að þagga niður í fórnarlömbum með bótagreiðslum. Hann sagði að markmiðið hefði frá upphafi verið að vernda blaðamenn og útgefendur og letja fyrirtæki til sambærilegra brota. Ina Steiner sagði að þau hjónin vonuðust til að eitthvað gott leiddi af þessari sársaukafullu reynslu sem hefði breytt lífi þeirra. Frétt AP af málinu.
Bandaríkin Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira