Guðmundur Felix kominn með krabbamein Eiður Þór Árnason skrifar 1. ágúst 2026 13:02 Guðmundur Felix Grétarsson með nýju handleggina sem breyttu lífi hans. Hann var að vonast til að sleppa við aðgerðir þetta árið. Vísir/Vilhelm Guðmundur Felix Grétarsson hefur greinst með krabbamein í nefi og þarf að láta fjarlægja það. Hann fékk fregnirnar í fyrradag og hafði búið sig undir það versta. Guðmundur segist hafa séð það svartara og ætla að berjast við þetta eins og annað. „
Það er búið að taka sýni úr því og þetta er svolítið aggressívt. Ég er búinn að fara í segulómtæki sem sýndi að þetta væri bara staðbundið, komið að beininu og brjóskinu en ekki í gegnum það. Þannig að þeir gera ráð fyrir að taka af nefið og sentímeter umfram svo það er nefið og aðeins af vörinni,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi. Ekki séu vísbendingar um að krabbameinið hafi dreift sér um líkamann en hann eigi eftir að fara í jáeindaskanna til að staðfesta þessa tilgátu læknanna. „Eins og þetta lítur út núna virðist vera merki um að með því muni þeir ná þessu alveg í burtu. Ég verð aðeins ófrýnilegri en verð allavega á lífi.“ Ekki í boði að gefast upp Guðmundur hefur vakið athygli fyrir það hvernig hann tókst á við það að missa handleggi sína í slysi árið 1998 en hann hefur öðlast nýtt líf eftir að handleggir voru græddir á hann í tímamótalæknisaðgerð árið 2021. Guðmundur Felix ásamt eiginkonu sinni Sylwia Edyta Nowakowska Gretarsson. Þau eru búsett í Strassborg í Frakklandi.Vísir/Vilhelm Hann segist hafa verið á góðu róli að undanförnu, hafa stofnað fyrirtæki og þetta setji mögulega strik í reikninginn. Þrátt fyrir það er hann jákvæður og hyggst takast á við þetta eins og aðrar áskoranir í sínu lífi. „Þetta er bara það sem það er. Það eru það margir í mínu lífi sem mér þykir vænt um að það er bara ekkert í boði að vera eitthvað að gefast upp. Maður berst við þetta eins og hvað annað.“ Bjó sig undir það versta „Ég var búinn að vera að bíða eftir niðurstöðum og var sagt að þetta væri mjög líklega krabbi þannig að maður náttúrulega átti von á öllu því versta. Að þetta væri komið inn í heilann og alls staðar. Þannig að það var svona smá léttir að þeir telja sig geta náð því.“ Þrátt fyrir það taki það eðlilega á að fá slíkar fregnir eftir allt sem á undan er gengið. „Ég er búinn að vera útlimlaus í 23 ár, með hendur í fimm ár og nú þarf að fara að skera meira af mér. Þetta er ekki besti staðurinn til þess að láta skera eitthvað af sér, beint framan í andlitinu. Þannig að þetta eru svona blendnar tilfinningar.“ Í samskiptum við fremstu lækna á þessu sviði „Ég mun fá einhver gervinef sem maður smellir á. Ég veit svo sem ekki hversu vel það mun líta út en maður verður allavega ekki gangandi um með holurnar í andlitinu,“ bætir Guðmundur við. Honum hafi verið bent á að leita til einhverra fremstu andlitsskurðlækna í heimi sem muni meta stöðuna og hvort það hægt sé að fjarlægja krabbameinið með minna áberandi hætti. Guðmundur er búsettur Strassborg í Frakklandi ásamt eiginkonu sinni Sylwia Edyta Nowakowska Gretarsson. Teymið sem hann hittir næsta mánudag tók þátt í fyrstu andlitságræðslunni sem framkvæmd var í heiminum og er sérhæft í míkróskurðlækningum sem notaðar eru til endurbyggja andlit, að sögn Guðmundar. Séð það svartara Þú hefur gengið í gegnum mikið fram að þessu og ert kannski hálfgert læknisfræðilegt kraftaverk. Ertu jákvæðari í ljósi þessa eða hvernig sérðu þetta? „Jájá, ég er öllu vanur orðinn einhvern veginn en ég var að vonast til þess að geta verið laus við aðgerðir þetta árið. Ég fór í fjórar í fyrra, missti tíu kíló og það er bara erfitt að vera alltaf í þessum aðgerðum. En ég meina, þetta er bara það sem það er og ég hef séð það svartara.“ Guðmundur árið 2021 þegar hann kom til Íslands í fyrsta sinn eftir að hafa fengið grædda á sig handleggi. Hann fékk þá loks að knúsa afabarn sitt.Vísir/Vilhelm Guðmundur segir að sér hafi gengið vel að undanförnu og nýju hendurnar hafi breytt lífi hans. „Ég var að stofna fyrirtæki og er að reyna að komast út á vinnumarkaðinn og gera hluti sem voru óhugsandi fyrir nokkrum árum síðan. Þannig að þetta er svona smá bakslag í þá drauma, það mun kannski hægja á mér.“ Hann hyggst selja snjallheimilislausnir til iðnaðarmanna og arkitekta en telur að ástand hans geti haft áhrif á sölustarfið. Hann ætlar þrátt fyrir það ekki að gefast upp frekar en fyrri daginn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Krabbamein Heilbrigðismál Tengdar fréttir Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar. Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 8. júní 2026 14:01 Lífið gjörbreytt Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 og fékk ágrædda handleggi árið 2021, segir árangurinn verulegan. Hann geti nú sjálfur keyrt bíl með höndunum, geti verið einn heima og fínhreyfingar séu í þróun. Hann segir læknana ekki endilega búist við því að hann myndi geta hreyft meira en olnbogann eftir aðgerðina. 8. desember 2025 08:43 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira
Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar. Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 8. júní 2026 14:01
Lífið gjörbreytt Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 og fékk ágrædda handleggi árið 2021, segir árangurinn verulegan. Hann geti nú sjálfur keyrt bíl með höndunum, geti verið einn heima og fínhreyfingar séu í þróun. Hann segir læknana ekki endilega búist við því að hann myndi geta hreyft meira en olnbogann eftir aðgerðina. 8. desember 2025 08:43