Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. ágúst 2026 20:09 Þrátt fyrir veðurblíðu fyrir norðan er skipuleggjendum útihátíða ekki skemmt. Vísir/Samsett Skipuleggjendur útihátiða á Norðurlandi eru búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan. Sérstaklega þykir þeim veðurspá Sigurðar Ragnarssonar, Sigga Storms, súr í brotið. Tap vegna veðurspárinnar hlaupi á milljónum fyrir sveitarfélögin þrátt fyrir blankalogn og heiðan himinn.
Guðmundur Óli Sigurðsson á Siglufirði og Davíð Rúnar Gunnarsson á Akureyri standa að stórum útihátíðum yfir verslunarmannahelgina sem laða að sér þúsundir utanbæjarmanna og í leiðinni miklar tekjur. Það er að segja, ef spáð er góðu veðri. Þeir gremjast ótímabærar yfirlýsingar, sérstaklega Sigga storms, sem fullyrti enda að veðurspár vestan- og austanhafs bentu allar í sömu áttina. „Þetta bendir allt til þess að við séum í læstri stöðu, það er að segja með lægðagang við norðausturhornið og norðaustur af landinu með norðanátt, sem er komin til að vera verslunarmannahelgina á enda,“ sagði hann í samtali við fréttastofu á mánudaginn sem var. Siggi stormur hefur síðar brugðist við gagnrýni skipuleggjendanna. „Plís, ekki fara þangað“ Davíð Rúnar Gunnarsson, Dabbi Rún, segir farir sínar ekki sléttar af fullyrðingagleði veðurfræðinga. Hann er skipuleggjandi hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri. „Það er náttúrulega ekkert normal að það komi bara einhver veðurfréttamaður og spái svona,“ segir hann. Hann bendir á að allt annað sé nú uppi á teningnum en spár gáfu til kynna þegar enn vantaði þónokkuð marga daga í að hátíðarhöldin hefðust. Sólin skíni, hitinn sé upp á tólf til fjórtán stig og fólk streymi léttklætt úr öllum áttum inn á Akureyrarvöll. Hægviðri var á Akureyri í dag.Vísir/Eiður „Einhver þarf virkilega að fara að pæla í því að það þyki eðlilegt að einhver fari í fréttirnar og segi: „Heyrið, það verður skítaveður fyrir norðan. Plís, ekki fara þangað.“ Og allir lepja upp þessa vitleysu vitandi að við búum á Íslandi og að það er ekkert að marka veðurspár fyrr en kannski tveimur dögum fyrir hátíð.“ Dabbi bætir við í hálfkæringi að skipuleggjendur hátíða fyrir norðan hafi jafnvel rætt það sín á milli hvort ekki væri tímabært að þeir réðu sinn eigin veðurfréttamann, sem myndi þá alltaf spá sól og blíðu, til að vega upp á móti. „Menn eru grautfúlir,“ segir hann en bætir svo við: „En hér erum við allavega í sólinni. Inn streymir fólk, það er röð inn á völlinn úr öllum áttum. Það er sól og hér eru allir í hamingju.“ Allt að helmingi færri en ella Guðmundur Óli Sigurðsson skipuleggjandi Síldarævintýrisins á Siglufirði tekur í sama streng. Tapið sé mikið, fólk sem ætlaði sér að koma hafi ekki komið og það þrátt fyrir að veðrið leiki við bæjarbúa. „Þær voru mjög misvísandi spárnar. Þær voru ekkert allar sammála bara nokkrum dögum fyrir,“ segir hann. Yfirlýsingar Sigga Storms hafi ekki verið tímabærar. „Þetta var ekki gáfulegt.“ Hann segir tapið svakalegt fyrir bæjarfélög sem haldi úti svona hátíðum og áætlar að um helmingi færri gestir hafi komið en ella. Afbókanir hafi verið á tjaldsvæðinu, til að mynda. „Ég var pirraður yfir þessu í gær af því að það kom smá úði. Maður blotnar ekki, þetta var bara smá úði og svo stytti algjörlega upp og skall á blankalogn. Þá pirraði maður sig því búið var að lýsa nánast hamfaraveðri hérna,“ segir hann. „Í dag er búið að vera heiðskírt. Maður hefur varla séð ský á himni. Þá verður maður bara reiður. Búið var að telja fólki trú um að það versta sem það gæti gert væri að fara norður. Spár ósammála um veðrið daginn eftir Guðmundur tekur fram að mikilvægt sé að veðurfræðingar vari við hættulegum veðuraðstæðum þegar við á. Hann hafi einnig skilning á því að fólk vilji að taka veðurspár með í reikninginn þegar ferðaáætlanir eru gerðar. „En með fullri virðingu, skiptir engu máli hvert maður lítur, hvort sem maður fer á veður.is, Bliku eða Belging, eru þeir ekki sammála um veðrið fyrir morgundaginn,“ segir Guðmundur, hvað þá fimm daga fram í tímann. Veðrið var einnig fallegt á Sigló í dag. Myndin er úr safni.Vísir/Egill Aðalsteinsson „Ég segi ekki, ef vindurinn hefði verið 25 metrar samkvæmt spánni og fimm dagar í þetta, þá mætti alveg minnast á það. Þá er þetta orðið hættulegt ferðavögnum. Það má vel minnast á að það líti ekki vel út en þetta var algjörlega ótímabært og hefur kostað ófáar milljónir,“ segir hann. „Menn ættu að muna þetta á næsta ári þegar kemur ótímabær spá. Það á alveg eins við ef spáð yrði fimmtán stiga hita og sól hérna fyrir norðan.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Verslunarmannahelgin Veður Tónleikar á Íslandi Akureyri Fjallabyggð Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira