Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 12:03 Ég hef varið stærstum hluta starfsævi minnar í íslensku atvinnulífi. Þar lærði ég að stærstu ákvarðanirnar eru sjaldnast teknar í hita augnabliksins. Þær eru teknar þegar fólk gefur sér tíma til að horfa fram á veginn, vega og meta kosti og galla og spyrja einfaldlega: Hvað þjónar okkur best til lengri tíma? Sama á við þegar við metum hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB. Áður en við göngum til atkvæða eigum við að spyrja: Hvernig stendur Evrópa sjálf og hvað getum við lært af stöðunni þar? Þessar spurningar skipta sérstaklega miklu máli nú, áður en við göngum til atkvæða um umfangsmikið umsóknarferli sem hefur fulla aðild að markmiði. Alvarlegar áskoranir innan ESB Mario Draghi, fyrrverandi forseti Seðlabanka Evrópu, vann að beiðni framkvæmdastjórnar ESB ítarlega úttekt á samkeppnishæfni sambandsins. Niðurstaðan var sláandi. Frá árinu 2000 hafa raunráðstöfunartekjur á mann aukist nær tvöfalt meira í Bandaríkjunum en innan ESB. Draghi bendir á að meginástæðan fyrir því að ESB hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum sé minni framleiðni og taldi hann jafnframt að ESB þyrfti að auka fjárfestingu um 750 til 800 milljarða evra á ári til að hrinda tillögum skýrslunnar í framkvæmd, meðal annars á sviði nýsköpunar, stafrænnar uppbyggingar, orkuskipta og varnarmála. Þetta er ekki gagnrýni frá andstæðingum ESB heldur greining sem sambandið sjálft kallaði eftir. Atvinnulífið tekur undir þessi viðvörunarorð. Í nýrri skýrslu BusinessEurope frá júní sl. segir meirihluti aðildarsamtakanna að viðskiptaumhverfið í Evrópu hafi versnað á undanförnum sex mánuðum. Þau segja að aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni hafi enn ekki skilað fyrirtækjum áþreifanlegum árangri. Flókið regluverk hamli fjárfestingu og nýsköpun, orkukostnaður sé áfram of hár og hindranir séu enn til staðar innan innri markaðarins. Í könnun þýsku Samtaka iðnaðarins BDI frá 2025 kom fram að um þriðjungur stórra iðnfyrirtækja hefði þegar flutt hluta rannsókna og þróunar frá Þýskalandi. Nær tveir af hverjum þremur töldu erlenda keppinauta eiga auðveldara með að koma nýjum hugmyndum og tækni í framkvæmd. Kostnaður og minni skriffinnska erlendis voru meðal helstu ástæðna. Þessar niðurstöður hafa vakið miklar áhyggjur í Evrópu, en þegar rannsóknir og þróun fara úr landi fylgja fjárfestingar, verðmætasköpun og framtíðarstörf gjarnan í kjölfarið. Í skýrslunni Much More Than a Market, sem Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, vann fyrir leiðtogaráð ESB, er dregin upp svipuð mynd. Þar bendir hann á að landsframleiðsla á mann hafi aukist um nær 60% í Bandaríkjunum á árunum 1993–2022 en innan við 30% í Evrópu. Letta undirstrikar jafnframt að ávinningur innri markaðarins sé ekki bundinn við aðild að ESB. Hann nefnir Ísland sérstaklega, lýsir EES-samningnum sem hornsteini samstarfsins og EES-ríkjunum sem mikilvægum samstarfsaðilum ESB. Þegar þessar viðvaranir eru lagðar saman blasir við skýr mynd. ESB glímir ekki aðeins við tímabundna lægð heldur djúpstæðan vanda í hagvexti, framleiðni, nýsköpun og fjárfestingu. Það hlýtur að skipta máli þegar aðild að sambandinu er kynnt hér á landi sem leið að meiri stöðugleika, sterkari samkeppnishæfni og betri lífskjörum. Áður en við færum ESB aukið ákvörðunarvald eigum við að horfast í augu við að sambandið glímir sjálft við alvarlegan vanda á einmitt þessum sviðum. Það sem skiptir íslenskt atvinnulíf mestu Það kemur því ekki á óvart að í nýrri könnun Gallup meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins eru 66% andvíg ESB-aðild en 22 prósent henni hlynnt. Andstaðan nær til bæði smárra sem og stórra fyrirtækja hringinn í kringum landið. Við njótum þegar þess þáttar Evrópusamstarfsins sem skiptir íslenskt atvinnulíf mestu. EES-samningurinn tryggir okkur aðgang að innri markaðnum. Við þurfum því ekki að velja milli Evrópu og einangrunar. Við getum átt náið samstarf, frjáls viðskipti og greiðan markaðsaðgang án þess að færa ESB aukið vald yfir gjaldmiðli, viðskipta- og utanríkisstefnu og mikilvægum auðlindum þjóðarinnar. Við eigum að taka viðvaranir evrópsks atvinnulífs alvarlega og einfalda regluverk, tryggja næga orku, bæta umhverfi fjárfestinga og skapa stöðugleika með ábyrgri hagstjórn. Þetta eru verkefni sem við verðum að leysa hér heima. Ég þekki af eigin raun þann kraft sem býr í íslensku atvinnulífi. Við viljum áfram náið samstarf við Evrópu og þau tækifæri sem opnir markaðir skapa. En við eigum ekki að leita efnahagslegrar töfralausnar í kerfi sem glímir sjálft við djúpstæðan samkeppnishæfnisvanda. Framtíð Íslands verður best byggð með ábyrgri hagstjórn, öflugu atvinnulífi og ákvörðunarvaldinu áfram í íslenskum höndum. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar