Handbolti

Viktor Gísli fram­lengir við Barcelona

Aron Guðmundsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson er lykilmaður í íslenska landsliðinu og hefur verið að gera frábæra hluti með Barcelona
Viktor Gísli Hallgrímsson er lykilmaður í íslenska landsliðinu og hefur verið að gera frábæra hluti með Barcelona VÍSIR/VILHELM

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta, Viktor Gísli Hallgrímsson, hefur framlengt samning sinn við spænska stórliðið Barcelona til ársins 2029.

Frá þessu greinir Barcelona í færslu á samfélagsmiðlum en Viktor Gísli gekk í raðir félagsins á síðasta ári og gerði þá saming til ársins 2027.

Segja má að samstarf Íslendingsins og Barcelona hafi gengið vonum framar en liðið varð Evrópumeistari á síðasta tímabili eftir að hafa lagt þýsku refina í Fusche Berlin að velli í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. 

Þá varð Barcelona einnig meistari heima fyrir og vann í heildina litið fjórfalt á síðasta tímabili: Spænsku deildidna, Meistaradeildina, spænska bikarinn og spænska deildarbikarinn. 

Viktor Gísli hefur þurft að berjast fyrir sínum mínútum í leikjum Barcelona við danska landsliðsmarkvörðinn Emil Nielsen sem er nú genginn til liðs við Vezprém. 

Barcelona fékk hins vegar engan nýgræðing inn í stað Nielsen því spænski landsliðsmarkvörðuinn Sergey Hernández er mættur til Börsunga frá Magdeburg. 

Viktor Gísli er ekki eini Íslendingurinn á mála hjá Barcelona því Janus Daði Smárason er einnig orðinn leikmaður liðsins og mun spila með því á komandi tímabili. Janus Daði gekk í raðir Barcelona frá Pick Szeged í Ungverjalandi eftir síðasta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×