„Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. júlí 2026 10:00 Elín Klara Þorkelsdóttir átti glimrandi ár í Svíþjóð og heldur nú út til að undirbúa annað árið, þar sem stefnt er á alla titla. Vísir/Sigurjón Segja má að Elín Klara Þorkelsdóttir hafi slegið í gegn á fyrsta ári sínu í atvinnumennsku. Áskoranir fylgja því að venjast nýju umhverfi og flytja út en hún lauk tímabilinu sem sænskur meistari og besti leikmaður deildarinnar.
Elín Klara hefur verið lykilmaður Hauka og íslenska landsliðsins undanfarin ár en tók skrefið út til Sävehof síðasta haust. Það hefur reynst heillaskref. „Heilt yfir er ég ótrúlega sátt með árið. Við byrjuðum með frekar nýtt lið en mér fannst stígandinn í liðinu mjög mikill yfir allt árið og svo endum við þetta eiginlega fullkomnlega. Heilt yfir er ekki yfir miklu til að kvarta,“ segir Elín Klara í Sportpakkanum á Sýn. Hvernig var að aðlagast nýju lífi í nýju landi? „Ég viðurkenni alveg að það tók nokkra mánuði að venjast og flytja að heiman. Maður er að læra svo margt og þroskast svo mikið með. Þetta er ekki bara handbolti, heldur lífið líka,“ „Þetta var krefjandi til að byrja með en eftir áramót fannst mér ég farin að spila minn leik,“ segir Elín Klara. Hverjar voru mestu áskoranirnar? „Maður er meira einn. Ég hafði búið heima með systkinum mínum og hafði kærastann minn. Maður saknar töluvert. En svo er það allt þetta, að elda og svoleiðis. Maður kemur ekkert heim til mömmu í mat lengur,“ segir Elín sem hefur þar af leiðandi bætt sig í eldhúsinu. Elín Klara fagnar sænska meistaratitlinum.Mynd/Savehof „Það gengur bara ágætlega. Maður heldur sömu rútínunni, eldar eitthvað og á það klárt þegar maður kemur heim af æfingum.“ Sænskan er þá hægt og rólega að koma. „Já, já. Ég skil mjög mikið og maður þarf bara að byrja að tala, fara út fyrir þægindarammann og byrja að tala.“ Eitt ár enn í Svíþjóð Elín Klara var valin besti leikmaður deildarinnar eftir að Sävehof tryggði sér sænska meistaratitilinn. Elín hafði unnið bikartitil með Haukum hér heima en vann í vor sinn fyrsta landstitil. Tilfinningin var allt að því ólýsanleg. „Bara ólýsanleg. Þetta var ótrúlega skemmtilegt. Þessi maí-mánuður var bara einn sá skemmtilegasti sem ég hef upplifað.“ Sænskir blaðamenn höfðu orð á því að hún væri alltof góð fyrir deildina í Svíþjóð og ætti að taka næsta skref. Hún er hins vegar spennt fyrir einu ári til í Svíþjóð en eftir það stefnir hún á næsta skref. „Ég er mjög glöð þarna og er ótrúlega ánægð að hafa tekið þetta skref út til Svíþjóðar. Ég held það hafi verið mjög flott. Ég tek eitt ár í viðbót þarna og auðvitað er bara markmiðið að taka þrennuna. Við tókum ekki bikarinn í fyrra svo ég á það eftir,“ segir Elín Klara.
Sænski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira