Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 23:32 Matthias Jaissle sést hér mæta á fyrsta degi sínum sem aðalþjálfari Newcastle United. Getty/Serena Taylor David Hopkinson, forstjóri Newcastle United, hefur mikla trú á nýja aðalþjálfaranum Matthias Jaissle, kallar hann „rokkstjörnu“ og segir að það séu engin takmörk fyrir því hvað hann geti náð langt í boltanum.
Þjóðverjinn var ráðinn á miðvikudag eftir brotthvarf Eddie Howe eftir fimm ár hjá félaginu, en Hopkinson sagði þá ráðningu marka upphaf „Newcastle 2.0“ verkefnisins. „Við vorum með skýr viðmið um hvað við vildum fá frá þjálfaranum sem tæki við af Eddie. MJ [Matthias Jaissle] uppfyllir öll skilyrðin og fer fram úr öðrum sem við höfðum ekki einu sinni íhugað. Þessi maður er fæddur sigurvegari,“ sagði Hopkinson við The Athletic. „Ég ætla ekki að segja ykkur hvað hann mun gera hjá Newcastle því sú saga á eftir að skrifast. En leyfið mér að segja ykkur hvað hann hefur gert. Hann hefur unnið sex titla á sínum unga stjóraferli. Hann hefur mikil áhrif. Hann er orkumikill. Hann hefur skýra sýn á hvað þarf til að sigra,“ sagði Hopkinson. „Ég hef haft þau forréttindi að vinna með nokkrum framúrskarandi stjórum og þjálfurum, þar á meðal Eddie, og þessum unga manni eru engin takmörk sett hvert ferill hans gæti leitt. Ég hef fulla trú á því að MJ sé rétti maðurinn til að leiða okkur inn í framtíðina og byggja ofan á allt sem Eddie hefur gert fyrir þetta félag. Þessi maður er virkilega áhrifamikill. Þessi maður er sjóðandi heitur. Hann er rokkstjarna,“ sagði Hopkinson. “Block the shots, if it’s a sliding tackle needed, block.” 😤 All in at La Manga. 🇪🇸 pic.twitter.com/BDw4F5lpN2— Newcastle United (@NUFC) August 6, 2026
Enski boltinn Newcastle United Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Fleiri fréttir Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Sjá meira