Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 10:01 Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, segir ferðina til Kasakstan hafa tekið mikið á. Blikaliðið lagði af stað heim um miðjan dag í gær en lendir ekki á Íslandi fyrr en í kvöld. Samsett/Vísir Martraðar Evrópuverkefni kvennaliðs Breiðabliks er að baki og lukkulega átti það ágætan endi. Löng ferðalög, steikjandi hiti og veikindi settu svip sinn á það og nú hlakkar Blikakonur eflaust til að komast heim.
Breiðablik hóf ferðalag í Evrópuverkefni til Kasakstan á föstudagskvöldið í síðustu viku og var ekki lent í Astana fyrr en á sunnudagskvöld eftir að hafa náð þriggja tíma svefni eða svo í Astana. Eftir komuna kom fljótlega í ljós að fjórir leikmenn í hópnum og tveir í þjálfarateyminu glímdu við magapest, þar á meðal landsliðskonan Agla María Albertsdóttir og þjálfarinn Ian Jeffs. Það átti eftir að setja sinn svip á ferðina en Breiðablik tapaði fyrir heimakonum á þriðjudaginn eftir vítaspyrnukeppni. Milli leikja var misjafnt hvað leikmenn gátu æft, ýmist vegna veikinda eða meiðsla en áttu svo annan leik í rúmlega 30 gráðum í dag. Sá vannst naumlega, þökk sé því að Agla María jafnaði í uppbótartíma og skoraði svo sigurmarkið í framlengingu. Breiðabliksliðið ferðaðist í tæpa tvo sólarhringa til að komast í verkefnið. Þegar það lenti gerðu veikindi vart við sig.Vísir/Sara „Agla María var mjög veik og æfði ekkert fyrir leikinn á móti Aktobe og spilar svo 120 mínútur og það lýsir bara karakternum hjá henni. Það var sama með Katie í dag, hún var alveg búin á því en kláraði 80 mínútur og gaf allt í þetta. Hún búin að vera liggjandi uppi í rúmi og æfði ekkert í gær heldur, líkt og fleiri leikmenn,“ segir Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks. „Þetta er búið að vera gríðarlega erfitt og þungt. Löng og erfið ferðalög og búið að taka gríðarlega mikið á bæði andlega og líkamlega. Svo er mikill hiti, ég held það hafi verið 33 gráður þegar við spiluðum í dag.“ Markvörður sem útileikmaður Athygli vakti að markvörðurinn Taylor Kane kom inn á sem varamaður, sem útileikmaður. Þrjár eru óléttar í hópi Breiðabliks, tvær meiddar og ein meiddist degi fyrir brottför, sökum þess fóru aðeins 16 leikmenn út og eitthvað þurfti undan að láta. „Vegna þess við vorum með 16 leikmenn vissum við alveg þegar við komum í þetta verkefni að við gætum lent í því að setja markmann inn sem útileikmann. Við tókum spjall við Taylor í gærkvöldi og hún tók vel í það að vera til taks ef þyrfti. Ég var nokkuð viss um að hún þyrfti að gera það og það varð niðurstaðan, vegna þess að leikmenn voru bara búnir á því,“ segir Jeffs. Fegnar heimferð Blikar fara nú heim á leið með sæti í Evrópudeildinni í farteskinu þökk sé sigri gærdagsins. Liðið fór eftir leik í gær af stað í 30 klukkustunda ferðalag en þær taka því eflaust fagnandi að koma heim í rigninguna á Íslandi. „Þetta er búið að vera erfitt en ég er bara stoltur af liðinu, stoltur af leikmönnum, starfsliðinu. Það eru allir búnir að gera sitt besta. Ég get ekki hrósað liðinu og starfsliðinu nógu mikið fyrir það sem þau hafa gert í þessari ferð,“ segir Jeffs. Innslagið úr Sportpakkanum á Sýn frá því í gær má finna í spilaranum.
Breiðablik Kasakstan Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Sjá meira