Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar 7. ágúst 2026 16:02 Við sátum oft heima við kvöldverðarborðið eða á kaffistofunni í vinnunni og ræddum það sem stundum var kallað um daginn og veginn. Mest ræddum við samt um það sem við sáum í Sjónvarpinu kvöldið áður, fræðsluþáttinn um Sama frá finnska sjónvarpinu og breskan þátt um Sohohverfið í Lundúnum. Allir komu að umræðunni frá sama sjónarhóli, stofusófanum. Allir töluðu út frá sömu upplýsingum. Þetta er horfinn heimur. Sameiginlegur kvöldverður fjölskyldunnar er í útrýmingarhættu. Náist slík stund endrum og eins er líklegast að umræðan verði einungis um daginn og veginn. Allir eru í sínum bergmálshelli og algrímur fóðrar einstaklingana á því sem þeir hafa áhuga á. Ég velti því fyrir mér hvort þessi tilviljunarkennda þekking sem við öfluðum okkar í línulegri dagskrá ljósvakamiðla sé að hverfa, að almenn þekking á heiminum og samfélögum manna sé á undanhaldi. Fyrir tilviljun Þegar mín kynslóð ólst upp réðum við engu um dagskrá útvarps og sjónvarps. Við horfðum á það sem var framreitt fyrir okkur, efni sem ritstjórar og dagskrárstjórar ákváðu að birta. Auðvitað voru margir þættir hundleiðinlegir. En inni á milli birtust heimildarmyndir, fréttaskýringar og menningarþættir sem við höfðum aldrei óskað eftir. Við ætluðum kannski að horfa á fréttirnar en sátum eftir og horfðum á þátt um frumbyggja í Ástralíu, náttúrulíf á Grænlandi eða þátt um forna búskaparhætti í Kelduhverfi. Við lærðum ótalmargt fyrir tilviljun. Þegar Netið kom til sögunnar var það talið eitt mesta framfaraskref mannkynssögunnar. Almenningur hafði aldrei haft jafn greiðan aðgang að þekkingu og fyrir forvitna var þessi nýja tækni hafsjór af fróðleik. Á augabragði gátum við kynnt okkur allt sem við höfðum þurft að fletta upp í alfræðibókum með ærinni fyrirhöfn. Allur heimurinn var á skjánum og hver og einn var orðinn eigin dagskrárstjóri. Við veljum sjálf hvað við lærum með lestri, áhorfi eða hlustun. Og veiturnar sem við notum læra sífellt betur hvað vekur áhuga okkar og dæla í okkur meira af því sama. Það er auðvitað stórkostlegt frelsi. En vekur sannarlega líka upp spurningar. Hvað verður um þennan almenna fróðleik sem við öfluðum okkur áður, án þess að hafa ætlað okkur það? Tapast ekki eitthvað þegar tilviljanakennd þekkingaröflun hverfur? Spurningaleikir Ég held því fráleitt fram að ungt fólk viti minna en mín kynslóð. Unga fólkið sem ég umgengst er býsna vel að sér í margvíslegum almennum fróðleik, þótt þau hafi sjaldan horft á heilan fréttatíma í línulegri dagskrá. Þau hafa fundið aðra leið. Þau sækja í spurningaleiki eins og Trivial Pursuit, Besserwisser, Gettu betur og Pöbbkviss. Þar verður almenn þekking að leik og sá sem veit ekki svarið leggur það á minnið þegar það opinberast. Að einhverju leyti bætir þessi mikla gróska spurningaleikja upp það sem hefur glatast. En hvað með þau sem eru ekki fróðleiksfús og líður ljómandi vel í sínum bergmálshelli. Hver sér um almenna menntun þegar skólagöngu lýkur? Hver leiðir okkur inn á ókunnar slóðir ef við veljum þær aldrei sjálf? Erum við smám saman að missa sameiginlegan þekkingargrunn? Sérþekking fremur en almenn þekking Já, þetta eru margar spurningar og svörin ekki á takteinum. Á síðustu árum hefur verið mikil umræða um svokallaðar upplýsingabólur (e. filter bubble). Hún hefur að mestu snúist um pólitík. Fólk velur sér fjölmiðla sem staðfesta eigin skoðanir og samfélagsmiðlar sýna okkur efni sem líklegt er að við séum sammála. Þessi þróun er alvarleg því hún kyndir undir skautun í samfélaginu og ógnar jafnvel lýðræðinu. Ef við deilum ekki lengur sömu staðreyndum verður sífellt erfiðara að eiga málefnalega umræðu. Tim Berners-Lee, sem lagði grunninn að veraldarvefnum, sá fyrir sér tæki sem myndi auðvelda samskipti, færa öllum þekkingu og styrkja lýðræðið. En þversögnin er sú að þótt Netið hefur opnað okkur óendanlegan aðgang að þekkingu hefur það líka gert okkur kleift að forðast almennan fróðleik. Leiðir það til þess að sameiginlegur sjóndeildarhringur samfélagsins sé að þrengjast, að við séum smám saman að missa þann sameiginlega fróðleik sem gerði okkur kleift að ræða um heiminn út frá einhverjum sameiginlegum grunni? Ef til vill var tilviljunin betri kennari en við gerðum okkur grein fyrir.Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Bretland Finnland Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar