Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 09:00 Roger Craig var frábær í glæstu liði San Francisco 49ers á níunda áratugnum. Nick Cammett/Getty Images Ruðningskappinn fyrrverandi Roger Craig vakti athygli á áhrifum höfuðhögga í NFL-deildinni í ræðu vegna inntöku hans í frægðarhöll deildarinnar. Hann greindi frá greiningu sinni á vitglöpum og kennir höfuðhöggum um.
Craig var hlaupari (e. running back) fyrir San Francisco 49ers um margra ára skeið en hann var tekinn inn í frægðarhöll ameríska fótboltans í dag. Í ræðu sinni við hátíðarhöldin greindi hann frá því að hann hefði greinst með vitglöp, 66 ára að aldri, og að læknar rektu það til heilahristings á leikmannaferlinum. „Tveir hlutir geta verið sannir,“ sagði Craig. „Fótboltinn gaf mér tækifæri umfram allt sem ég gat ímyndað mér. Hann hjálpaði til við að móta þann mann sem ég varð. Á sama tíma vitum við meira í dag um heilsu heilans heldur en þegar ég spilaði, og ég vona að það að ég deili sögu minni hvetji fólk til að huga að heilsu sinni og leita sér hjálpar þegar það óttast að allt sé ekki með felldu.“ Craig var lykilmaður í glæstu liði San Francisco 49ers sem raðaði inn titlum á níunda áratugnum og vann þrjár Ofurskálar. Þar voru með honum Joe Montana, Jerry Rice og Ronnie Lott á meðal annarra. Craig varð árið 1985 fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að bæði hlaupa og grípa fyrir meira en þúsund stikum. Hann var valinn sóknarleikmaður ársins í deildinni árið 1988. Craig sagði að tilgangur hans með því að deila greiningu sinni væri að hjálpa öðrum sem gætu verið í svipaðri stöðu. „Breytingarnar komu smám saman,“ sagði hann. „Í fyrstu var auðvelt að afgreiða þær sem eðlilega öldrun. Með tímanum tók fjölskylda mín eftir því líka. Að lokum leiddi það til þess að við leituðum svara hjá lækninum mínum.“ Umræðan ekki ný af nálinni NFL hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin ár vegna slakra viðbragða við höfuðmeiðslum leikmanna. Nígerísk-bandaríski læknirinn Bennet Omalu setti hugtakið CTE fram í grein árið 2005 eftir að hafa rannsakað fyrrum NFL-leikmanninn Mike Webster, sem lést árið 2002 eftir að hafa hagað sér óvenjulega um nokkurt skeið áður en hann svipti sig lífi. Fjölmargir leikmenn í NFL hafa sýnt einkenni CTE eftir að ferli þeirra lauk, sem hvað helst sýnir sig í snemmbúnum vitglöpum, ofbeldishneigðri hegðun og þunglyndi. Árið 2015 féllst deildin á að greiða einn milljarð bandaríkjadala í bótagreiðslur til að leysa þúsundir málsókna fyrrum leikmanna sem þjáðust af tauga- eða heilaskaða.
NFL Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Fleiri fréttir Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Var launahæstur í sögunni í tvo daga Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Sjá meira