Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Aron Guðmundsson skrifar 9. ágúst 2026 15:20 Gyökeres, leikmaður Arsenal í baráttunni í leik dagsins. Vísir/Getty Ensku liðin áttu misjöfnu gengi að fagna í æfingaleikjum dagsins í fótboltanum. Englandsmeistarar Arsenal töpuðu öðrum leik sínum í röð á undirbúningstímabilinu og Liverpool missti niður tveggja marka forystu yfir í tapaðan leik.
Arsenal tók á móti Borussia Dortmund á Emirates leikvanginum í Emirates bikarnum. Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal stillti upp sterku liði og sneri Martin Ödegaard, fyrirliði liðsins til að mynda aftur eftir HM pásu. Það voru hins vegar gestirnir frá Þýskalandi sem komust yfir í leiknum strax á sjöundu mínútu. Ítalinn Samuele Inácio skoraði markið. Á 29.mínútu tvöfaldaði Konstantinos Karetsas síðan forystu Dortmund með öðru marki liðsins og stóðu leikar 2-0 í hálfleik. Ethan Nwaneri klóraði í bakkann fyrir Arsenal með marki á 54.mínútu en Joane Gadou svaraði því með þriðja marki Dortmund skömmu seinna. Viktor Gyökeres skoraði annað mark Arsenal úr vítaspyrnu á 69.mínútu, staðan orðin 3-2 Dortmund í vil og þar við sat. Englandsmeistararnir ekki sannfærandi upp á síðkastið. Fóru illa að ráði sínu Á sama tíma tók Liverpool á móti franska liðinu Monaco á Anfield. Alexander Isak kom Liverpool yfir með marki á 16.mínútu áður en að Florian Wirtz tvöfaldaði forystu heimanna með marki á 29.mínútu. 2-0. Rússinn Aleksandr Golovin minnkaði muninn fyrir Monaco með marki úr vítaspyrnu skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks og á 56.mínútu tókst Dananum Mika Biereth að jafna metin fyrir franska liðið, 2-2. Þegar komið var fram á lokamínútur leiksins fullkomnaði Paris Brunner endurkomu Monaco með því að skora þriðja mark liðsins og tryggja 3-2 sigur. City sigur í Suður-Kóreu Þá hafði Manchester City betur gegn Atletico Madrid í morgun þegar að liðin mættust í Suður-Kóreu. Omar Marmoush skoraði tvennu í leiknum fyrir City og Rayan Ait Nouri eitt mark Jafntefli í Malasíu Þá gerði Chelsea 3-3 jafntefli gegn Johor Darul Ta´zim frá Malasíu. Leikmenn Chelsea skoruðu ekkert mark úr opnum leik. Liam Delap skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum og þá varð Cristóbal Marquez, leikmaður Johor fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Liverpool FC Chelsea FC Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Minden keypti Erling af ÍBV Handbolti Fleiri fréttir Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjá meira