Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar 10. ágúst 2026 17:01 Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að lifa í óvissu mánuðum og árum saman. Að „eiga“ heimili sem þú mátt ekki búa í. Heimili sem þú hafðir ekki val um að flytja úr. Að sjá samfélagið sitt standa tómt og vita á sama tíma að staðan gæti verið allt önnur. Nú hefur Þórkatla ákveðið að framlengja gistiheimild í húsunum sem ríkið keypti út október. Enn ein frestunin. Enn nokkrir mánuðir þar sem engin raunveruleg ákvörðun er tekin. Ég skil vel að stjórnvöld þurfi að fara varlega. Öryggi verður alltaf að vera í fyrirrúmi. En á einhverjum tímapunkti verðum við líka að spyrja: Hverju er verið að bíða eftir? Ef það er verið að bíða eftir goslokum gæti sú bið tekið nokkur ár. Ef það er nýtt áhættumat þá þarf sú vinna að komast í fluggírinn. Ég hef lagt til að þeir sem vilja og treysta sér til að búa aftur í Grindavík fái að gera það með afnotarétti. Fái að skrá lögheimili sitt í Grindavík - í húsum Þórkötlu. Við greiðum áfram hita og rafmagn en fasteignagjöld til viðbótar og tökum þátt í að byggja samfélagið upp á ný. Það myndi skapa tekjur fyrir Grindavíkurbæ, líf í bæinn og von fyrir okkur sem þráum svo heitt að búa aftur í Grindavík. Í staðinn er óvissan framlengd. Aftur. Nú þegar eru tugir íbúða í Grindavík í útleigu utan eigna Þórkötlu og þar býr fólk. Er áhættan önnur fyrir það fólk en okkur sem viljum snúa aftur í okkar fyrrum eignir? Ef svarið er nei, þá er eðlilegt að spyrja hvers vegna Þórkatla leyfir ekki fasta búsetu í sínum eignum? Við getum ekki byggt samfélag á tímabundnum undanþágum og endalausum frestunum. Grindavík reis ekki á sínum tíma vegna þess að fólk beið eftir fullkomnum aðstæðum. Hún reis vegna þess að þar bjó fólk sem skapaði samfélag, skapaði verðmæti og fann rótum sínum frjóan og góðan jarðveg. Samfélagið í Grindavík verður sannarlega ekki endurbyggt með tómum húsum. Það verður endurbyggt þegar fólkið fær að koma heim. Það er einlæg von mín að nýtt áhættumat líti dagsins ljós sem allra fyrst svo hægt verði að taka raunverulegar ákvarðanir. Vonandi hverfur þessi frestunarárátta í sólmyrkvann. Grindvíkingar eiga skilið að ákvarðanir séu teknar til lengri tíma og framtíðar - ekki endalausar frestanir. Höfundur er Grindvíkingur, fyrrum bæjarfulltrúi og eigandi Discover Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Kristín María Birgisdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar