Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2026 13:22 José Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar, ávarpar fjölmiðla í Ceuta á norðurströnd Afríku í morgun. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja.
Tugir þúsunda förufólks fóru ólöglega inn í Ceuta á Miðjarðarhafsströnd Marokkó í lok júlí og stór hluti þess er enn á spænska yfirráðasvæðinu. José Manuel Albares heimsótti Ceuta í dag og fullyrti við það tækifæri að öllum þeim sem komu ólöglega til borgarinnar yrði snúið aftur til Marokkó. Varaði hann aðra við því hætta lífi sínu, fjármunum og framtíð til þess að komast til Ceuta eða Melillu, annarrar spænskrar borgar í Norður-Marokkó. Uppákoman um mánaðamótin hefur valdið skjálfta í Evrópu og hvöttu Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Giorgia Meloni, ítölsk starfssystir hennar, til þess að tökin yrðu hert á landamærum Evrópu í sameiginlegri yfirlýsingu í gær. Förufólk braut sér leið inn í spænska yfirráðasvæðið Ceuta frá Marokkó síðustu tvo dagana í júlí. Tugir manna fórust við að reyna að komast þangað.AP/Antonio Sempere Albares fullvissaði önnur Evrópuríki í dag um að ytri mörk Schengen-svæðisins í Ceuta og Melilla væru „algerlega trygg“, að því er segir í frétt spænska blaðsins El País. „Enginn hefur farið frá borginni að [Íberíu]skaganum, og þeir geta það ekki,“ fullyrti spænski utanríkisráðherrann. Beita hvor aðra landamæraeftirliti í þrætum Áætlað er að um 70.000 manns hafi streymt inn í Ceuta dagana 30. og 31. júlí. Um áttatíu manns fórust í atganginum en þeir ýmist drukknuðu eða urðu undir í troðningi. Neyðarástandið hefur hleypt illu blóði í samskipti spænskra og ítalskra stjórnvalda. Spænska ríkisstjórnin tilkynnti um helgina að ferðalangar frá Ítalíu þyrftu að sæta landamæraeftirliti við komuna til Spánar. Galt hún þannig ítölskum stjórnvöldum líku líkt en þau settu sambærilegar takmarkanir á Spánverja 1. ágúst. Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, gagnrýndi þá harðlega það sem hún kallaði frjálslynda innflytjendastefnu ríkisstjórnar Sósíalistaflokksins á Spáni. Ceuta og Melilla eru síðustu leifar spænska heimsveldisins en Spánverjar sölsuðu landsvæðin undir sig á 15. og 16. öld áður en Marokkó varð til sem ríki. Stjórnvöld í Marokkó viðurkenna ekki yfirráð Spánverja yfir borgunum og gera tilkall til þeirra.
Spánn Marokkó Innflytjendamál Ítalía Evrópusambandið Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira