Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Lovísa Arnardóttir skrifar 11. ágúst 2026 14:57 Kveikt verður á götulýsingu á Breiðholtsbraut. Vísir/Vilhelm Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst.
Göturnar sem um ræðir eru til dæmis Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, Hafnarfjarðarvegur, Miklabraut og Sæbraut. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að þar sem umferðarhraðinn er minni, til dæmis á Hringbraut í Reykjavík og Strandgötu í Hafnarfirði, verður slökkt á lýsingunni meðan sólmyrkvinn gengur yfir. Þar kemur jafnframt fram að almennt verði slökkt á götulýsingu á götum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Alls staðar verði kveikt á umferðarljósum á gatnamótum og þau ávallt virk. Einstefna víða á Vestfjörðum Sjá má á vef Vegagerðarinnar, Almyrkvi á sólu, hvernig umferðarstýringu verður háttað víða á vestanverðu landinu. Mest verður um að ræða einstefnu inn á tiltekin svæði. Að loknum almyrkvanum verður þeim flestum aflétt. „Þá er rétt að minna á að hugsanlega þarf að beita umferðarstýringu í Hvalfjarðargöngum og beina ferðalöngum um Hvalfjörð. Sama á við um Breiðadals- og Botnsheiðargöng á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningu. Þar er að lokum minnt á þau tilmæli að best geti verið að upplifa sólmyrkvann heima hjá sér. Þeir sem þurfa að ferðast gefi sér góðan tíma til þess, leggi snemma af stað og verði viðbúnir því að heimferð gæti einnig tekið mjög langan tíma.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Reykjavík Hafnarfjörður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira