Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 12. ágúst 2026 08:43 Jim og Christine frá Bandaríkjunum. Christine hafði langað að koma til Íslands frá því hún var ung. Vísir/Bjarni Ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia flytur í dag yfir 1.200 erlenda ferðamenn í 24 rútum út á Snæfellsnes til þess að fylgjast með almyrkva á sólu, einum stærsta viðburði sinnar tegundar hér á landi um árabil.
Rúturnar leggja af stað klukkan níu. Berghildur Erla fréttamaður og Bjarni tökumaður litu við á rútumiðstöðinni til að ræða við ferðamenn. Ásta Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ferðasviðs hjá Icelandia, segir marga hafa bókað ferðina fyrir meira en ári síðan, jafnvel áður en þau bókuðu flugið. „Við erum að fara með 1200 ferðamenn á Rif á Snæfellsnesi og markmiðið er að skapa einstaka upplifun,“ segir hún. Ásta segir að auðvitað hefði verið skemmtilegra ef það væri aðeins bjartara og þau hafi tekið ákvörðun um staðsetningu í gær bara en þau séu vongóð. Ásta Guðmundsstórri, framkvæmdastjóri ferðasviðs hjá Icelandia.Vísir/Bjarni Hún segir einhverja geta orðið fyrir vonbrigðum en leiðsögumenn hafi fengið þjálfun frá Sævari Helga og upplifunin sé svo margt Og undirbúin fyrir væntingastjórnun og þau muni fara vel yfir þetta á leiðinni. „Og gera eins gott úr þessu og við getum.“ Skála yfir sólmyrkva Í tilkynningu um flutningana kom fram að Snæfellsbær útvegaði afmarkað svæði á staðnum fyrir hópinn og er Icelandia auk þess í samstarfi við heimamenn á Rifi, sem munu selja veitingar meðan á viðburðinum stendur. Þá hefur fyrirtækið einnig flutt salernisaðstöðu á svæðið til að tryggja að vel sé haldið á öllum praktískum atriðum fyrir gestina. Þegar almyrkvinn gengur yfir fá allir gestir freyðivínsglas, áfengt eða óáfengt, til að skála fyrir þessum einstaka viðburði. Fjöldi ferðamanna á leið á Snæfellsnes í dag. Vísir/Bjarni Leiðsögumenn Icelandia fengu sérstaka þjálfun og kynningu frá Sævari Helga Bragasyni til að geta frætt gesti um almyrkvann og það sem fyrir augu ber á staðnum. Allir gestir fá jafnframt sólmyrkvagleraugu, sem keypt voru af Sævari Helga, svo þeir geti fylgst öruggir með viðburðinum. Berghildur ræddi við David from Colorado sem sagðist hafa komið til landsins aðeins fyrir sólmyrkvann. „Þau ætla að flytja okkur þangað þar sem bestar líkur eru á að við sjáum sólmyrkvann,“ segir hann og að hann sé vongóður um að sjá myrkvann. „Ég hef komið hingað áður, núna er ég bara hér fyrir sólmyrkvann,“ segir David og að þau séu fjögur saman á landinu. David frá Colorado kom aðeins fyrir sólmyrkvann. Vísir/Bjarni Jim og Christine ferðuðust til Íslands frá New Hampshire í Bandaríkjunum. „Við erum hér fyrir sólmyrkvann og auðvitað allt sem er æðislegt á Íslandi,“ segir Christine. Veðurspáin ekki til umræðu Jim segir að þau hafi verið hér í viku og að þau séu afar spennt að sjá myrkvann. Christine segir að þau hafi bókað ferðina fyrir meira en ári síðan og að þau hafi vitað af ferðinni og verið svo spennt að koma. „Við ætlum ekkert að tala um veðurspána, ég ætla ekki að jinxa það.“ Christine segist hafa viljað koma til Íslands frá því hún var ung og hún hafi lesið sér til fyrir ferðina. „Þetta er æðislegt og svo spennandi.“ Jim og Christine frá Bandaríkjunum. Christina hafði langað að koma til Íslands frá því hún var ung. Vísir/Bjarni Hailey frá Surrey í Bretlandi og Helen frá Southchester í Bretlandi bókuðu ferðina fyrir tólf mánuðum. „Við erum að fara að sjá sólmyrkvann í dag,“ segir Hailey og að þau viti ekki alveg hvar þau sjái hann, þau ætli að fara þar sem mestar líkur eru. Hailey og Helen frá Bretlandi. Vísir/Bjarni Helen segir þau hafa bókað ferðina fyrir tólf mánuðum til að geta séð sólmyrkvann. Hún segist hafa áhyggjur af því að það verði skýjað en þau vonist til þess að sjá örlítið af sólinni. Hailey segir að þau verði ekki vonsvikin ef þau sjá ekki til hans, þau hafi séð svo margt fallegt á Íslandi. Helen segist hafa séð einn í Bretlandi og þá hafi veðrið verið svipað. „Það var samt töluverð upplifun, það var algjört myrkur,“ segir Helen. Almyrkvi á sólu sést á vestanverðu Íslandi síðdegis í dag. Við fylgjumst með í vaktinni hér á Vísi.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Snæfellsbær Ferðaþjónusta Reykjavík Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira