Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 08:03 Dóttir mín sem er uppalin og býr í Bretlandi er enn miður sín yfir úrslitum Brexit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016. Hún mjög reið yfir öllum lygunum sem Brexit hópurinn setti fram – á hliðum strætisvagna, í bæklingum sem bornir voru í hús, í dagblöðum, í viðræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi – og víðar. Hún er enn reið yfir því að vera ekki lengur hluti af Evrópusambandinu – 10 árum síðar. Hún er reið yfir misstum tækifærum unga fólksins. Hún er reið yfir yfirtöku afturhaldsins og hnignunar skólakerfisins og heilbrigðisþjónustunnar. Hún talar ekki um hálfsannleika eða fleiprur – heldur lygar. Hennar orðfæri tek ég upp hér að neðan þar sem ég fer yfir nokkrar lygar sem koma aftur og aftur fram í umræðunni. Þetta eru bara dæmi, alls ekki tæmandi upptalning: Evrópuher verður stofnaður. Það er þrýstingur um það stofna Evrópuher frá grasrótinni og upp í æðstu ráðamenn Evrópusambandsins (ESB). Þetta er lygi. Það er ekki til neinn Evrópusambandsher og engin áform eru um að stofna slíkan her. Farið verður í framhaldsskólana og börnin okkar send í herþjónustu. Þetta er lygi - þar sem það er enginn ESB her! Fullveldið tapast með aðild að ESB. Þetta er lygi. Tuttugu og sjö ESB þjóðir hafa ekki misst fullveldið. Auk þess sem innra fullveldi Íslands er virt með því að spyrja þjóðina hvort taka eigi aftur upp aðildarviðræður. Ef þjóðin segir já byrjar aðild að ESB strax. Þetta er lygi. Einugis er verið að spyrja þjóðina hvort hún vilji að haldið sé áfram með þær aðildarviðræður sem stöðvaðar voru 2013. Glórulaust að sækja um aðild að ESB nema maður vilji fara inn. Þetta er lygi. Ef svarið er já 29. ágúst um að halda aðildarviðræðum áfram verður sótt um til ESB að hefja aðildarviðræður í haust og viðræðurnar munu hefjast í lok árs. Að aðildarviðræðum loknum verður samningurinn sem næst milli Íslands og ESB lagður undir AÐRA ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU. Ekki er hægt að semja um neinn skapaðan hlut við ESB. Þetta er lygi. Margar þjóðir sem eru aðilar að ESB hafa fengið aðlögun að sínum aðstæðum, t.d. líkt og Finnland og Svíþjóð í sambandi við landbúnað á norðurslóðum (Grein 142). Ísland verður þakið vindmyllum ef við göngum í ESB. Þetta er lygi. Nú þegar eru yfir 40 staðir á landinu í athugun um uppsetningu vindorkugarða. Það tengist ekkert ESB heldur stefnu íslenskra stjórnvalda og ráðherra málefnaflokksins. Það er afar dýrt fyrir Ísland að vera í ESB. Þetta er lygi. Ísland borgar nú þegar fyrir aðild að EES – og sú greiðsla leggst niður ef gengið verður í ESB. Í stað þess mun aðildargjald fyrir ESB koma – auk þess sem sérstök samningsatriði munu koma okkur til góða. Niðurstaðan um að það sé dýrara að vera í ESB en EES liggur ekki fyrir fyrr en aðildarsamningur verður kláraður (ef já fæst úr þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst). Dýrasta rannsóknarverkefni allra tíma að skoða ofan í tóman pakka. Þette er enn ein lygin. „Pakkinn“ er alls ekki tómur. Semja má um mörg atriði t.d. sem varðar landbúnað og sjávarútveg. Og svo er það loks náttúruverndin Ég vann og kenndi við Bristolháskóla í Bretlandi frá 1989-2008 – eða nær 20 ár. Þar sá ég umhverfislöggjöf stórbatna eftir að Bretland varð aðili að ESB. Bretland fór frá því að vera skítuga land Evrópu yfir í að vera til fyrirmyndar. Ég fylgdist vel með því að ég kenndi nemendum mínum í umhverfisjarðfræði við háskólann í Bristol umhverfiseiturefnafræði, umhverfislögfræði, og mat á umhverfisáhrifum auk þess sem sérgrein mín á þeim tíma var hegðun mengunarefna í náttúrunni. Síðan Brexit varð að veruleika hefur mengun aukist til muna í Bretlandi – ár, strendur, jarðvegur og andrúmsloft eru aftur menguð vegna aukinna losunarheimilda (út í vatn og andrúmsloft) til iðnaðar og landbúnaðar. Dóttir mín er líka reið yfir þessari hnignun náttúrunnar. Ísland er nú þegar hluti af EES og innleiðir því stóran hluta umhverfisslöggjafar ESB. En það er ljóst í mínum huga að við munum fá betri umhverfislöggjöf með því að ganga í ESB auk þess sem þrýstingur mun verða meiri á að Ísland fylgi eftir alls konar alþjóðasáttmálum um umhverfismál sem Ísland hefur nú þegar (og mun í framtíðinni) skrifað undir en ekki náð að uppfylla að fullu. Loks má geta þess að EES-samningurinn nær ekki almennt til löggjafar um náttúruvernd. Ísland er t.d. ekki hluti af Nature2000-kerfinu og fugla- og búsvæðatilskipanir gilda ekki á Íslandi með sama hætti. Því myndi ESB-aðild færa Ísland sterkari og ítarlegri lagaramma um vernd búsvæða, tenunda og líffræðilegrar fjölbreytni. Einnig má nefna að endurheimt framræsts mýrlendis er mikilvægur hluti af umhverfis- og loftslagsstefnu ESB. Hvað landbúnað varðar leggur ESB áherslu á vistvænar aðferðir og bændum er greitt meðal annars fyrir aðgerðir sem vernda jarðveg, vatn, líffræðilega fjölbreytni og loftslag. Þessi náttúruverndarfókus er mjög mikilvægur fyrir loftslag, vistkerfi og fæðuöryggi til frambúðar. Af öllu ofangreindu, mun ég segja já 29. ágúst (er raunar búin að því utan kjörfundar). Höfundur er prófessor emerita og meðlimur í stjórn Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Bretland Finnland Svíþjóð Brexit Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun