Íslenski boltinn

Sjóð­heit Ída Marín kveður FH

Sindri Sverrisson skrifar
Ída Marín Hermannsdóttir er mætt til Svíþjóðar og klár í slaginn með Hammarby.
Ída Marín Hermannsdóttir er mætt til Svíþjóðar og klár í slaginn með Hammarby. Hammarby IF

Ída Marín Hermannsdóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, hefur verið seld frá FH til sænska félagsins Hammarby.

FH-ingar greina frá þessu á miðlum sínum í dag en ljóst er að mikill áhugi hefur verið á Ídu Marín sem átt hefur frábært ár. Samningur hennar við Hammarby gildir til ársins 2030.

Hún kveður Bestu deildina eftir að hafa skorað 13 mörk í sumar fyrir FH sem er í 2. sæti, aðeins þremur stigum á eftir Breiðabliki í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Ljóst er að brotthvarf Ídu Marínar gæti haft mikil áhrif á titilbaráttuna.

Ída Marín, sem er 24 ára, kom á ný inn í íslenska landsliðið fyrr á þessu ári þegar hún var óvænt í byrjunarliðinu gegn Spáni í mars. Hún hefur leikið með FH, Val og Fylki hér á landi en einnig með LSU Tigers í bandaríska háskólaboltanum.

Ída Marín fór á kostum með FH í sumar.vísir/Anton

Ída Marín, sem er dóttir landsliðsfólksins fyrrverandi Hermanns Hreiðarssonar og Rögnu Lóu Stefánsdóttur, gengur þegar í stað til liðs við Hammarby og verður þar liðsfélagi Guðrúnar Arnardóttur, líkt og í landsliðinu.

Hammarby er í næstefsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Häcken. Næsti leikur liðsins er við Malmö á útivelli á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×