Fernandes ekki á förum Andri Broddason skrifar 17. ágúst 2026 19:32 Bruno Fernandes hefur verið lykilleikmaður Manchester United. Steve Bardens/Getty Images Manchester United ætlar að hafna öllum tilboðum sem gerð verða í Bruno Fernandes, fyrirliða liðsins, í þessum félagsskiptaglugga.
Samkvæmt BBC hafa nokkur félög gert tilboð í portúgalska miðjumanninn Bruno Fernandes. Félög á borð við Galatasaray, Juventus og AC Milan hafa sýnt áhuga á leikmanninum en ekkert hefur gengið hjá þeim. Nú hefur Manchester United ákveðið að hafna öllum tilboðum í Fernandes. Síðasta sumar virtist stjórn Manchester United hafa samþykkt tilboð frá sádí-arabíska félaginu Al-Hilal í Fernandes en eftir samtal við konu sína hafi hann ákveðið að neita að semja við félagið. Það reyndist vera góð ákvörðun fyrir United þar sem Bruno Fernandes bætti stoðsendingametið í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili sem hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Einnig var hann valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Aðeins eitt ár er eftir af samningi hans við félagið en það er framlengingarákvæði í samningnum um eitt ár í viðbót. Ekki er enn búið að ákveða hvort framlengja eigi samninginn við Fernandes eða ekki. Lítið gerst á markaðnum Þrátt fyrir að ákveða að halda Fernandes í eitt ár í viðbót í það minnsta hefur lítið gerst á félagsskiptamarkaðnum hjá Manchester United. Í byrjun sumars var búist við að félagið myndi kaupa mikið af leikmönnum þar sem liðið þarf að stækka hópinn eftir að hafa komist í Meistaradeild Evrópu. Aðeins tveir leikmenn hafa komið til liðsins í sumar. Félagið keypti Youri Tielemans frá Aston Villa og Andrey Santos frá Chelsea. Fátt annað hefur komist á borðið hjá félaginu og eru stuðningsmenn áhyggjufullir yfir því hve þunnur hópurinn er. Fyrr í sumar var búist við að Mason Mount þyrfti að stíga upp á miðjunni en hann meiddist á undirbúningstímabilinu og hefur misst af síðustu tveim leikjum. Ekki er búist við að hann verði í leikmannahóp Manchester United þegar liðið mætir Hull í fyrsta leik deildarinnar.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Nottingham Forest - Arsenal | Gengið skelfilega að skora á þessum velli Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira