Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 07:32 Christian Eriksen gæti hafa spilað sinn síðasta fótboltaleik eftir að hafa farið í hjartastopp í landsleik, í annað sinn. Getty/Ulrik Pedersen Enn ríkir óvissa um framhald fótboltaferils Christians Eriksen eftir að hann féll til jarðar og fór í hjartastopp í landsleik með Danmörku, í annað sinn á ferlinum, fyrr í sumar. Vinnuveitendur hans hjá þýska félaginu Wolfsburg gefa honum þann tíma sem hann þarf og þurfa ekki að hafa áhyggjur af launakostnaði.
Danski miðillinn Bold segir að forráðamönnum Wolfsburg liggi ekkert á að fá botn í það hvort hinn 34 ára Eriksen ætli sér að halda áfram að spila fótbolta. Reglurnar í Þýskalandi séu nefnilega þannig að tryggingarnar greiði laun hans. Samkvæmt reglunum þurfi knattspyrnufélög aðeins að greiða leikmönnum laun fyrstu sex vikurnar sem þeir séu fjarverandi vegna meiðsla en leikmenn verði að vera tryggðir fyrir lengri fjarveru. Meira en sex vikur eru síðan að Eriksen hné niður í vináttulandsleik gegn Úkraínu 7. júní, þar sem ígræddur bjargráður kom honum til bjargar og endurræsti hjartað. Ekkert hefur heyrst af Eriksen undanfarnar vikur, hvorki frá honum né félaginu hans, annað en það að hann sinni sinni endurhæfingu heima í Danmörku og njóti fulls stuðnings Wolfsburg. Það sást þó til Eriksen í stuttri heimsókn til Wolfsburg í lok júlí þar sem hann fylgdist með æfingaleik gegn Telstar, samkvæmt frétt Bold. Þar segir jafnframt ljóst að útilokað sé að Eriksen verði í danska landsliðshópnum sem komi saman eftir mánuð, til að spila í Þjóðadeildinni. Það hafi einnig verið staðan fyrir ári síðan en af annarri ástæðu, en Eriksen var þá án félags eftir að samningur hans við Manchester United rann út. Hann gekk svo í raðir Wolfsburg í september og er með samning við félagið sem gildir fram á næsta sumar.
Þýski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Sjá meira