Enn á gjörgæslu eftir að hafa misst fótanna í sundlaug Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 12:32 Yael Trepy fagnar marki með Cagliari í mars. Getty/Enrico Locci Franska framherjanum Yael Trepy, tvítugum leikmanni Cagliari á Ítalíu, er enn haldið sofandi í gjörgæslu á sjúkrahúsi eftir að hafa misst meðvitund í sundlaug á sunnudaginn.
Samkvæmt frétt BBC á Bretlandi var Trepy að skemmta sér í sundlaug með vinum sínum, í villu þar sem þeir dvöldu á ítölsku eyjunni Sardiníu. Allt í einu hafi hann hins vegar verið kominn í dýpsta enda laugarinnar og ekki geta komið sér að bakkanum, með þeim afleiðingum að lungu hans fylltust af vatni. Trepy var fluttur með flugi á sjúkrahús í Sassari og er samkvæmt ítölskum miðlum á borð við Sky enn á gjörgæslu, og haldið þar sofandi. Hann ku þó hafa sýnt batamerki. „Félagið er í stöðugu sambandi við heilbrigðisstofnunina og fjölskyldu leikmannsins og fylgist náið með því hvernig ástand hans þróast,“ sagði í yfirlýsingu frá Cagliari. Fabio Pisacane, þjálfari Cagliari, gaf Trepy sín fyrstu tækifæri í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð og sendi frá sér þessi skilaboð á Instagram: „Í fjögur ár hef ég séð þig vaxa, berjast og komast yfir hverja hindrun. Núna tekstu á við mikilvægasta leikinn. Haltu áfram að berjast Yael. Ég stend með þér eins og alltaf. Ég bíð eftir þér.“ Leikmenn Cagliari fengu frí um síðustu helgi eftir að hafa unnið Arezzo 1-0 í ítölsku bikarkeppninni á föstudag, þar sem Trepy spilaði 54 mínútur. Hann skoraði eitt mark í átta deildarleikjum á síðustu leiktíð eftir að hafa áður verið í unglingaliðum Cagliari frá árinu 2022.
Ítalski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Sjá meira