Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Freyja Þórisdóttir skrifar 19. ágúst 2026 16:52 Fréttamaðurinn segist aldrei hafa séð annað eins. Vísir/Vilhelm/Arnar Íbúa í Vesturbæ Reykjavíkur brá heldur betur í brún þegar hann leit upp af kvöldmatnum og sá ránfugl gæða sér á spörfugli í bakgarðinum við heimili sitt. Hann segir atburðarásina hafa verið svo ólystuga áhorfs að hann missti matarlystina og þurfti að henda kvöldmatnum sínum í ruslið. „Þessi meistari var á Reynimelnum í gærkvöldi, um klukkan sex,“ segir Arnar Már Jónsmundsson íþróttapródúsent en hann sagðist ansi viss um að fuglinn væri smyrill frekar en fálki, annars hefði hann verið stærri. Fuglinn hafi svo tekið sér sinn tíma og rifið út garnirnar á smáfuglinum á sama tíma og Arnar reyndi að torga plokkfisknum sem hann hafði eldað sér í kvöldmatinn áður en hann tók eftir því sem gekk á í garðinum. „Ég var hálfnaður með þennan disk af plokkfiski og missti matarlystina, þannig að ég því miður varð að henda restinni,“ segir hann og bætir við að stuttu seinna hafi Smyrillinn „tekið hræið upp og flogið burt með það úr garðinum“. Getur þú sent okkur nýlegar myndir, myndbönd eða frásagnir af ránfuglum á höfuðborgarsvæðinu eða getur þú staðfest að um smyril sé að ræða en ekki fálka? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200. Í svari Vísindavefsins frá því árið 2006 segir að smyrillinn sé ránfugl af ætt fálka en sé minnstur allra tegundanna. Hann er miklu algengari hér á landi en fálkinn, sem má einnig kalla val, en árið 2023 var greint frá því að fálkar hafi ekki verið færri á Íslandi síðan mælingar hófust fyrir fjörutíu og sex árum. Dýr Fuglar Reykjavík Matur Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira
„Þessi meistari var á Reynimelnum í gærkvöldi, um klukkan sex,“ segir Arnar Már Jónsmundsson íþróttapródúsent en hann sagðist ansi viss um að fuglinn væri smyrill frekar en fálki, annars hefði hann verið stærri. Fuglinn hafi svo tekið sér sinn tíma og rifið út garnirnar á smáfuglinum á sama tíma og Arnar reyndi að torga plokkfisknum sem hann hafði eldað sér í kvöldmatinn áður en hann tók eftir því sem gekk á í garðinum. „Ég var hálfnaður með þennan disk af plokkfiski og missti matarlystina, þannig að ég því miður varð að henda restinni,“ segir hann og bætir við að stuttu seinna hafi Smyrillinn „tekið hræið upp og flogið burt með það úr garðinum“. Getur þú sent okkur nýlegar myndir, myndbönd eða frásagnir af ránfuglum á höfuðborgarsvæðinu eða getur þú staðfest að um smyril sé að ræða en ekki fálka? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200. Í svari Vísindavefsins frá því árið 2006 segir að smyrillinn sé ránfugl af ætt fálka en sé minnstur allra tegundanna. Hann er miklu algengari hér á landi en fálkinn, sem má einnig kalla val, en árið 2023 var greint frá því að fálkar hafi ekki verið færri á Íslandi síðan mælingar hófust fyrir fjörutíu og sex árum.
Getur þú sent okkur nýlegar myndir, myndbönd eða frásagnir af ránfuglum á höfuðborgarsvæðinu eða getur þú staðfest að um smyril sé að ræða en ekki fálka? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200.
Dýr Fuglar Reykjavík Matur Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira