Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 17:43 Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir vaxtahækkun leggja eina ferðina enn auknar byrðar á skuldsett heimili sem hafa þegar greitt hátt verð fyrir baráttuna gegn verðbólgunni. Vísir/Vilhelm Forseti Alþýðusambands Íslands segir vaxtahækkun við núverandi aðstæður vera ranga, illa tímasetta og leggja aukna byrði á skuldsett heimili landsins. Allt bendi til þess að forsendur kjarasamninga frá árinu 2024 bresti.
Þetta kemur fram í frétt á vef Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir að skýr merki séu um að hagkerfið sé að kólna, atvinnuleysi sé að aukast og að heimili hafi þegar búið við gríðarlega vaxtabyrði árum saman. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Finnbjörn segir rökstuðning Seðlabankans fyrir vaxtahækkuninni vekja athygli en talsmenn bankans sögðu að aukning mældrar verðbólgu hefði fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. „Hærri stýrivextir lækka ekki opinber gjöld. Þeir stöðva ekki stríð. Þeir lækka ekki heimsmarkaðsverð á olíu,“ er haft eftir Finnbirni í fréttinni. Hins vegar geri þeir húsnæðislán dýrari, þrengi að ráðstöfunartekjum heimilanna, dragi úr framkvæmdum og geri húsnæðisuppbyggingu enn erfiðari. Röng ákvörðun á versta tíma Vaxtahækkunin sé röng ákvörðun á versta tíma en eftir nokkra daga liggi verðbólgumæling ágústmánaðar fyrir og allt bendi til þess að forsendur kjarasamninganna frá 2024 bresti. Verkalýðshreyfingin geti ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að stýrivextir standi í átta prósentum en fyrir rúmum tveimur árum hafi launafólk verið beðið um að treysta því að hófsemi í launakröfum myndi skapa grundvöll fyrir lægri vexti og meiri stöðugleika. „Það verður ekki samþykkt að svarið við brostnum forsendum sé enn meiri fórn af hálfu sama fólks. Launafólk á Íslandi á ekki að borga enn einu sinni fyrir mistök sem það ber ekki ábyrgð á,“ er haft eftir forseta ASÍ.
Seðlabankinn Fjármál heimilisins Efnahagsmál Kjaramál Vinnumarkaður Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira