Fótbolti

Enski boltinn hefst í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Riccardo Calafiori  skoraði fyrir Arsenal gegn City um helgina. 
Riccardo Calafiori skoraði fyrir Arsenal gegn City um helgina.  vísir/getty

Það er sannarlega stór dagur á Sýn Sport en enska úrvalsdeildin hefur göngu sína.

Fyrsti leikur tímabilsins er viðureign Arsenal og Coventry á Emirates-vellinum í London. Útsending á Sýn Sport hefst klukkan 18:30 með heljarinnar upphitun en leikurinn sjálfur fer af stað klukkan 19:00.

Þrír leikir eru í beinni útsendingu í Bestu-deild kvenna í dag, en ÍBV-Þróttur er klukkan 17:15 á Sýn Sport Ísland 2, Þór/KA-Valur klukkan 18:00 á Sýn Sport Ísland og FH-Víkingur á sama tíma á Sýn Sport Ísland 3.

Bestu-mörkin hefjast síðan klukkan 21:35 á Sport Ísland.

Klukkan 16:15 á Sýn Sport Viaplay hefst útsending frá Bundesligu kvenna þegar Union Berlin tekur á móti Bayern Munchen en okkar kona Glódís Perla verður þar í eldlínunni með Bayern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×