Framherjarnir þurfi að stíga upp Valur Páll Eiríksson skrifar 27. október 2026 11:32 Van Dijk segir erfitt fyrir nýja menn að feta í fótspor Mohamed Salah en lítið annað sé í boði. Getty Rándýrir leikmenn Liverpool hafa fótað sig ágætlega í síðustu leikjum en fyrirliðinn Virgil van Dijk kallar eftir meiru. Þeirra bíði það erfiða verkefni að fylla í fótspor Mohamed Salah.
Salah yfirgaf Liverpool í sumar eftir erfiða síðustu leiktíð en hafði árin á undan raðað inn mörkum og bætt fjölmörg met. Hann fór til Trabzonspor í Tyrklandi þar sem hann hefur skorað tíu mörk í tíu leikjum fyrir sitt nýja félag. Liverpool vann Brighton um helgina þar sem ný framlína liðsins virtist smella ágætlega. Alexander Isak, Florian Wirtz og Bradley Barcola kostuðu félagið samanlagðar 364 milljónir punda en hvorugum þeirra tveggja fyrrnefndu tókst að sýna sig og sanna á fyrstu leiktíð þeirra í fyrra. Isak skoraði sjötta mark sitt í jafnmörgum deildarleikjum um helgina eftir stoðsendingu frá Barcola sem sjálfur skoraði þrennu í Meistaradeildinni á dögunum. Wirtz hefur þá einnig stigið upp undanfarið. Virgil van Dijk, fyrirliði liðsins, segir Salah og félaga hans í framlínunni um nokkurra ára skeið, Roberto Firmino og Sadio Mané, hafa gefið tóninn fyrir þær kröfur sem gerðar eru hjá félaginu. Nú sé nýrra manna að slá sama tón. „Ég held að þetta sé raunveruleikinn. Það sem Mo hefur gert í svo mörg ár sem kantmaður, ég held að enginn geti leikið það eftir,“ segir van Dijk. „Vonandi gerist það en það sem hann gerði var ótrúlegt. Það sama á við um Sadio [Mane] og Bobby [Roberto Firmino]. Vonandi gerist það aftur og það er það sem við vinnum að, en nú er komið að öðrum og aðrir þurfa að stíga upp,“ segir Hollendingurinn enn fremur. „Við getum alltaf hugsað að allt hafi verið betra í gamla daga en það er ekki hugarfarið sem á að ríkja hjá félagi eins og Liverpool og mér finnst það aldrei hafa verið þannig. Félagið mun alltaf breyta til á einhverjum tímapunkti og það eru alltaf leikmenn sem munu skína og standa sig fyrir félagið,“ „Það er undir leikmönnunum sem eru hér núna komið að sýna það á þriggja eða fjögurra daga fresti. Hjá félagi eins og Liverpool þarftu að gera það á þriggja eða fjögurra daga fresti. Það er alltaf áskorunin, en það er skemmtileg áskorun. Ég er nokkuð viss um að þetta verði í góðu lagi,“ segir van Dijk. Liverpool mætir Chelsea í enska deildabikarnum á Anfield annað kvöld í leik sem verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay klukkan 19:50.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Sjá meira