Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 10:40 Ég tel mig almennt vera ágætis foreldri. En í svona sjö vikur í sumar hefur mér ekki alveg liðið þannig. Börnin mín hafa orðið að lyklabörnum sem borða óhóflegt magn af núðlusúpu og grilluðum samlokum og skjátíminn hefur verið rýmkaður allverulega. Þær hafa verið duglegar að hitta vini, fara í sund og bjarga sér. En þeim hefur líka leiðst ótæpilega og síðustu vikurnar hafa þær talið niður dagana þar til skólinn byrjar aftur. Ég hef valið að kalla þetta sumar skítamixsumarið mikla. Þetta rétt gekk, en sjaldan hefur skólabjallan hljómað jafn undursamlega að hausti. Grunnskólabörn á Íslandi eru í sumarfríi í um tíu og hálfa viku. Taki foreldrar þrjár eða fjórar vikur í frí standa eftir sex til sjö vikur sem þarf einhvern veginn að brúa með námskeiðum, sumarfrístund, ömmum og öfum, vinum, vinnu að heiman og almennum reddingum. Lausnin sem margir reiða sig á er blessuðu sumarnámskeiðin. Ein mamma sem ég þekki lýsti námskeiðakvíðanum, eins og ég kýs að kalla hann, vel í vor: Náum við plássi? Hvað ef vinurinn nær ekki plássi? Hvað ef refresh-takkinn festist? Hrynur vefurinn undan álagi? Hún stakk svo upp á nýju viðskiptatækifæri: „Námskeið í skráningu á sumarnámskeið 101.“ Námskeiðslýsing: Öndun og væntingastjórnun. Ég hló upphátt. Tengdi aðeins of vel við þetta. Svo er það verðið. Ein sem ég þekki eyddi 230.000 krónum í sumarnámskeið fyrir börnin sín tvö og sagðist, í kaldhæðni, hafa sloppið vel. Ég tek undir það. Og námskeiðin eru svo oft bara þrír eða fjórir tímar á dag. Dóttir mín fékkst nánast bara á eitt námskeið í sumar, sveitanámskeið sem hún elskaði. Hún kom heim ilmandi af hestaskít, brosandi og með sögur af kúri með kanínum og kettlingum. En það var hálftíma akstur þangað og námskeiðið stóð í þrjá tíma. Tveir tímar í skutl fyrir þriggja tíma námskeið. Það gekk upp hjá okkur vegna samskutls og sveigjanleika í vinnu. En þetta er ekki raunhæf lausn fyrir stóran hluta vinnandi foreldra. Börnin mín brenndu sig líka fljótt á námskeiðapúslinu. Nýr staður, nýir krakkar og nýir leiðbeinendur á hverjum mánudegi. Á sumum stöðum komu þær heim með sögur af „unglingunum sem voru bara í símanum“ og áhuginn slökknaði fljótt ef þeim fannst námskeiðið meira geymsla en uppbyggilegt starf. Sumarfrístund er mikilvægt úrræði fyrir yngri börn, en viku eftir viku verður hún heldur ekki spennandi fyrir öll börn. Mér finnst að börnum eigi að fá að leiðast og hef engan áhuga á að fylla hverja mínútu sumarsins af skipulögðu starfi. En það er munur á rólegum sumardegi og tíu og hálfri viku sem foreldrar og börn eiga meira og minna að redda sjálf. Þurfa börnin okkar virkilega svona langt sumarfrí? Í PISA 2022 voru íslenskir nemendur undir meðaltali OECD í lestri, stærðfræði og náttúruvísindum og ráðuneytið hefur sjálft bent á að kennsludagar hér séu fáir í evrópskum samanburði. Ég er ekki að halda því fram að sumarfríið skýri þetta. En tíu og hálf vika er langt hlé frá námi. Ég sé það á mínum börnum. Lesturinn dettur niður, rútínan hverfur og haustið byrjar að hluta á upprifjun. Í Danmörku er sumarfríið um sex vikur og í Noregi um átta. Af hverju ekki að ræða hvort við eigum að stytta sumarfríið og dreifa frídögum betur yfir árið, eða fjölga kennsludögum? Og ef við ætlum að halda í svona langt sumarfrí þurfa í það minnsta að vera til raunveruleg heilsdagsúrræði sem ganga upp með fullri vinnu og kosta ekki hálfan handlegginn. Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir baklandi, sveigjanlegri vinnu og djúpum vösum. Helst öllu þessu í senn. Og það er auðvitað langt frá því að allar fjölskyldur búi við þann veruleika. Ég elska kennara og skil vel að þeir elski sumarfríið sitt. Við hin elskum þetta bara ekki. En við höfðum þetta af, enn eina ferðina. Og við ykkur, kæru foreldrar, langar mig bara að segja: Gleðilegan fyrsta skóladag! Höfundur er foreldri tveggja grunnskólabarna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Frístund barna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar