Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2026 15:32 Andoni Iraola fékk enga draumabyrjun sem stjóri Liverpool en þó stig gegn Newcastle. Samsett/Getty/Sýn Bjarni Guðjónsson auglýsir eftir knattspyrnustjórum sem bera með sér að vera meiri foringjar en þeir sem nú starfa í ensku úrvalsdeildinni. Hann efast þannig um að Andoni Iraola hafi þau persónueinkenni sem til þurfi til að stýra stjörnuleikmönnum Liverpool.
Í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gær var meðal annars rætt um Liverpool-liðið sem hóf sitt fyrsta tímabil undir stjórn Iraola á því að ná naumlega í 2-2 jafntefli við Newcastle á útivelli. „Ég því miður óttast pínulítið bras,“ sagði Bjarni um Liverpool og hélt svo áfram: „Eitt af því sem ég held að þú þurfir sem stjóri, sérstaklega í Englandi þar sem eru búningsherbergi full af stórum og miklum karakterum, þá held ég að þú þurfir stóra og sterka karaktera á móti þeim,“ sagði Bjarni. Klippa: Messan - Umræða um Liverpool Hann nefndi þannig Jürgen Klopp, Pep Guardiola og José Mourinho í þessu sambandi. „Hverjir eru stórir í deildinni núna? Hvar eru stóru strákarnir?“ spurði Bjarni og var fátt um svör. „Hvorugur þessara stjóra sem við horfðum á í dag finnst mér hafa einhverja sérstaka áru yfir sér,“ bætti Bjarni við og átti þá við Iraola og Þjóðverjann Matthias Jaissle sem tók við Newcastle í sumar. Kjartan Henry Finnbogason spurði svo Bjarna hvað hann ætti við með að Liverpool yrði í „brasi“. Hvort það þýddi baráttu um Evrópusæti eða hvað? „Góðu fréttirnar fyrir Liverpool eru að City mun elta Arsenal en svo er hætt við að þetta verði einhver grautur þar á eftir,“ sagði Bjarni.
Enski boltinn Messan Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjá meira