Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 25. ágúst 2026 08:10 Þessa dagana er rekin vel fjármögnuð auglýsingaherferð þar sem reynt er að telja fólki trú um að við missum forræði yfir auðlindum okkar ef teknar verða upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er eðlilegt að tekist sé hraustlega á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu og að stór orð séu látin falla í hita leiksins. En það slær mann illa þegar fjársterk öfl virðast ala skipulega á ótta með málflutningi sem ekki á sér stoð í raunveruleikanum. Sem ráðherra orkumála finnst mér rétt að koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri: Það er viðurkennd grundvallarregla í þjóðarétti að ríki fara sjálf með varanlegt forræði yfir náttúruauðlindum sínum. Í þessu felst að ákvörðunarvald um eignarhald og nýtingu auðlinda liggur hjá hverju ríki fyrir sig. Yfirráð yfir orkuauðlindum í aðildarríkjum Evrópusambandsins eru í höndum aðildarríkjanna sjálfra samkvæmt grunnreglum sambandsins. Í 194. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins stendur skýrum stöfum að ákvarðanir um skilyrði fyrir nýtingu orkuauðlinda, val milli mismunandi orkugjafa og almenna uppbyggingu orkuframboðs liggi hjá aðildarríkjunum sjálfum, ekki hjá stofnunum Evrópusambandsins. Í 192. gr. sama sáttmála er að finna sérstaka varúðarreglu um að ráðstafanir sem hafa veruleg áhrif á val ríkis milli orkugjafa eða almenna uppbyggingu orkuframboðs þurfi almennt einróma samþykki ríkja í ráðherraráði Evrópusambandsins. Þá segir í 345. gr. sáttmálans að reglur um skipan eignaréttar liggi hjá aðildarríkjunum sjálfum, sem þýðir að þeim er í sjálfsvald sett hvort auðlindir og fyrirtæki sem nýta auðlindir séu í opinberri eigu, einkaeigu eða blönduðu eignarhaldi. Ísland hefur þegar tekið upp meginhluta orkulöggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn og reglur ESB um fjórfrelsið, samkeppni og ríkisstyrki gilda nú þegar um íslenskan raforkumarkað á grundvelli EES-samningsins. Innganga Íslands í ESB hefði því óveruleg áhrif á umgjörð orkumála hér á landi. Evrópusambandið hefur engar heimildir til þess að knýja á um lagningu sæstrengs milli aðildarríkja. Ekkert í lögum eða dómaframkvæmd gefur tilefni til að draga slíka ályktun. Þetta var skoðað rækilega í umræðunni um þriðja orkupakkann fyrir nokkrum árum, fjöldi sérfræðinga kallaður til og niðurstaðan var afgerandi: sama hvort horft er til EES-samningsins eða reglna Evrópusambandsins, þá liggur valdið hjá okkur sjálfum. Með því að hefja viðræður við Evrópusambandið er ekkert vald framselt og engar ákvarðanir teknar um forræði yfir auðlindum. Tilgangur viðræðna er að leiða í ljós hvernig samningur stendur Íslandi til boða, hvaða undanþágur eða sérlausnir koma til greina og hvort full aðild að Evrópusambandinu þjóni heildarhagsmunum Íslands. Enginn aðildarsamningur tekur gildi nema að hann verði samþykktur af þjóðinni í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Íslendingar eru stolt fullvalda þjóð og forræði Íslands yfir orkuauðlindum er óumsemjanlegt. Leyfum engum að telja okkur trú um annað. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Orkumál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun