Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 14:04 Það er óhætt að segja að samfélagið hafi verið undirlagt af umræðu um Evrópusambandið frá því tillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu var samþykkt í maí sl. Er þá sama hvort um fréttamiðlana, hlaðvarpsþætti, heitu pottana eða útilegur er að ræða. Einhverjir hafa gert lítið úr umfangi og hita umræðunnar en flestir hafa upplifað hversu mikið hitamál þetta er í íslensku samfélagi. Í afmælisboði sem ég fékk á dögunum var eitt áréttað; það var bannað að ræða ESB! Aldurshámark á kjósendur? Margt hefur rekið á fjörur okkar í umræðunni. Við höfum fengið innsýn í skyndibita- og mjólkurverð í stöku ESB-ríki og undirrituð lagði m.a.s. sitt af mörkum í fríi á Ítalíu og fór yfir nýjustu hagtölur þaðan. Fyrrum forsetar og forsætisráðherrar, verkalýðsforingjar og listamenn hafa lagt sitt af mörkum. Já-hreyfingin gerðist jafnvel svo fræg (kræf?) að velta vöngum yfir fylgni milli aldurs og skoðana á Evrópusambandinu og benti á að það væri styttra í handanheiminn fyrir hluta kjósenda. Þeir sem leigðu skilti um allt land undir birtingar skilaboða um að 29. ágúst gæti fólk kosið um að „sjá lægri vexti“ eru að segja ósatt. En eftir að hafa rökrætt við kjósendur í fleirtölu um hvort við munum geta samið um fjölda þingmanna á Evrópuþinginu eða 0,08% atkvæðavægi okkar innan ESB er í það minnsta ljóst að markaðsbrella ESB-sinna undir merkjum forvitinna hefur þyrlað upp ryki. Hvað verður rætt í september? Eitt er víst. Þann 29. ágúst verður kosið um hvort áframhald verði á umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið; hvort ganga eigi á ný til viðræðna um aðild Íslands í ESB. Ef svarið verður já bíður okkar langt, strangt og kostnaðarsamt ferli með áframhaldandi þrætum á öllum miðlum. Ef svarið verður nei, getum við loksins farið að einbeita okkur að þörfum verkefnum innanlands, ekki síst hárri verðbólgu og háum vöxtum sem henni fylgja. Ef svarið verður nei, getum við varið september og mánuðunum þar á eftir í að ræða allt annað en ESB. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og 2. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Það er óhætt að segja að samfélagið hafi verið undirlagt af umræðu um Evrópusambandið frá því tillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu var samþykkt í maí sl. Er þá sama hvort um fréttamiðlana, hlaðvarpsþætti, heitu pottana eða útilegur er að ræða. Einhverjir hafa gert lítið úr umfangi og hita umræðunnar en flestir hafa upplifað hversu mikið hitamál þetta er í íslensku samfélagi. Í afmælisboði sem ég fékk á dögunum var eitt áréttað; það var bannað að ræða ESB! Aldurshámark á kjósendur? Margt hefur rekið á fjörur okkar í umræðunni. Við höfum fengið innsýn í skyndibita- og mjólkurverð í stöku ESB-ríki og undirrituð lagði m.a.s. sitt af mörkum í fríi á Ítalíu og fór yfir nýjustu hagtölur þaðan. Fyrrum forsetar og forsætisráðherrar, verkalýðsforingjar og listamenn hafa lagt sitt af mörkum. Já-hreyfingin gerðist jafnvel svo fræg (kræf?) að velta vöngum yfir fylgni milli aldurs og skoðana á Evrópusambandinu og benti á að það væri styttra í handanheiminn fyrir hluta kjósenda. Þeir sem leigðu skilti um allt land undir birtingar skilaboða um að 29. ágúst gæti fólk kosið um að „sjá lægri vexti“ eru að segja ósatt. En eftir að hafa rökrætt við kjósendur í fleirtölu um hvort við munum geta samið um fjölda þingmanna á Evrópuþinginu eða 0,08% atkvæðavægi okkar innan ESB er í það minnsta ljóst að markaðsbrella ESB-sinna undir merkjum forvitinna hefur þyrlað upp ryki. Hvað verður rætt í september? Eitt er víst. Þann 29. ágúst verður kosið um hvort áframhald verði á umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið; hvort ganga eigi á ný til viðræðna um aðild Íslands í ESB. Ef svarið verður já bíður okkar langt, strangt og kostnaðarsamt ferli með áframhaldandi þrætum á öllum miðlum. Ef svarið verður nei, getum við loksins farið að einbeita okkur að þörfum verkefnum innanlands, ekki síst hárri verðbólgu og háum vöxtum sem henni fylgja. Ef svarið verður nei, getum við varið september og mánuðunum þar á eftir í að ræða allt annað en ESB. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og 2. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar