Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Aron Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2026 20:01 Elísa Kristinsdóttir, hlaupadrottning, tekst á við eina af stærstu áskorunum síns ferils til þessa á morgun. Vísir/Ívar Hlaupadrottningin Elísa Kristinsdóttir mátar sig við þær bestu í heimi í utanvegahlaupum í fyrramálið þegar að hún tekur þátt í CCC Mont Blanc hlaupinu. Elísa hefur unnið stóra sigra á árinu og stefnir hátt á morgun.
Hlaupið, sem telur um 101 kílómeter, er það stærsta í utanvegahlaupasenunni á heimsvísu og þær bestu í heimi, þar á meðal Elísa, mæta til leiks á morgun. „Ég er mjög spennt. Hlakka ótrúlega til að mæta á ráslínuna á föstudaginn og fá að hlaupa þessa mögnuðu leið. Leiðin sjálf er líka bara mjög skemmtileg, hentar mér mjög vel. Undirlagið er æðislegt, hæðarmetrar flottir,“ segir Elísa í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Ég fer upp í 2300 metra hæð og er aðeins upp í þeirri hæð. Það eru löng niðurhlaup í þessu hlaupi sem maður getur ekki æft á Íslandi. Lengsta niðurhlaupið í þessari braut til að mynda telur nítján kílómetra. Eitthvað sem við þekkjum alls ekki heima. Ég þarf að passa mig að fara ekki of hratt þar niður og eiga enn næga orku í fótunum til að klára hlaupið. Með augun á tólf tímum Elísa hefur farið mikla sigurför á hlaupaárinu og vann sína þriðju utanvegakeppni á UTMB mótaröðinni á Ítalíu fyrr í sumar. Hún er meðal hæst skrifuðu keppenda í hlaupi morgundagsins. „Ég vil náttúrulega ná að standa mig mjög vel, eiga mjög gott hlaup. Að vera í topp tíu væri geggjað, topp fimm væri enn þá betra. Ég vil heldur ekki fara fram úr mér í vonum. Ég er að horfa á að vera í kringum tólf tíma með þetta hlaup. Það væri geggjað ef ég myndi ná því.“ Verkjalaus og klár í slaginn Elísa upplifði mikinn kvíða í aðdraganda hlaupsins þar sem hún hefur verið að glíma við meiðsli í hné og hélt um tíma að ekkert yrði af sinni þátttöku. Hún er verkjalaus og vann tvö hlaup hér heima fyrir skemmstu. „Það eru í raun bara tvær vikur síðan að ég byrjaði að hlaupa almennilega. Undirbúningurinn fyrir þetta hlaup hefur því ekki verið eins og ég hefði viljað en að sama skapi er það bara sjaldnast þannig að hlutirnir séu akkúrat eins og maður vill. Maður gerir það besta úr stöðunni. Ég hef verið að hjóla slatta og hef haldið góðu formi. Ég treysti á að það skili góðum árangri. Ég er allavegana búin að gera allt sem ég get út frá meiðslunum. Vissulega var mikill kvíði í kringum þessi meiðsli þegar að hnéð var sem verst, fannst ekki vera mikill bati og var ekki alveg að sjá fyrir mér að ég væri að fara hlaupa 100 kílómetra. En svo er hnéð orðið gott, ég er búin að vera hlaupa aðeins hérna úti og það er að bregðast mjög vel við. Það ætti ekki að vera hindrun í hlaupinu.“ Og ekki verra að Elísa getur treyst á sína góðu vinkonu og helstu aðstoðarkonu, Sonju Sif Jóhannsdóttur á meðan á hlaupinu stendur. Það veit á gott. View this post on Instagram A post shared by Sonja Sif Jóhannsdóttir (@sonjasifj) „Það er bara rosalega dýrmætt. Mín bestu hlaup eru þegar að ég er með Sonju með mér. Ég gæti ekki gert þetta án hennar. Það er algjörlega þannig. Ég er óendanlega þakklát að hafa hana hérna með mér, er rosalega örugg þegar ég er að hlaupa og veit af henni á svæðinu. Það veitir mér mjög mikið öryggi og ég er alltaf ótrúlega spennt að komast á hverja drykkjarstöð fyrir sig vitandi að ég er að fara hitta hana.“ Elísa hleypur af stað í CCC Hoka Mont Blanc hlaupinu klukkan sjö í fyrramálið. Færð verða tíðindi af hlaupinu á Vísi.
Hlaup Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Sjá meira