Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2026 23:15 Unai Emery er svekktur að sjá á eftir Ollie Watkins en segir að tilboð Al Hilal í markahrókinn hafi verið gott. epa/ADAM VAUGHAN Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, er gáttaður á því hversu hátt verð félagið fékk fyrir ensku landsliðsmennina Ollie Watkins og Ezri Konsa.
Villa hefur samþykkt tilboð sádi-arabíska félagsins Al Hilal í Watkins upp á rúmlega fimmtíu milljónir punda. Villa seldi Konsa til Englandsmeistara Arsenal fyrir 51 milljón punda á dögunum. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Villa í sumar en auk Watkins og Konsa hafa Evrópudeildarmeistararnir selt Youri Tielemans til Manchester United og Lucas Digne til Paris Saint-Germain. Þá er markvörðurinn Emiliano Martínez líklega á leið til Chelsea. „Við tókum sumar ákvarðanir því þær voru góðar fyrir félagið. Við reynum að vera eins samkeppnishæfir og við getum og skilja sumar ákvarðanir. Þær sem við tókum varðandi það að þróa suma leikmenn og hvernig við gátum selt aðra eru þær réttu,“ sagði Emery á blaðamannafundi í dag. „Með Youri Tielemans og Lucas Digne voru þeir með ákvæði í samningum sínum. Hvað Watkins, Martínez og Konsa varðar er brjálað að við höfum fengið fimmtíu milljónir punda fyrir Konsa og Watkins. Við viljum ekki vera félag sem selur leikmenn en við verðum að sætta okkur við það. Af hverju? Því leikmennirnir kröfðust þess að fara og þetta var hagstætt fyrir okkur.“ Watkins og Konsa komu báðir til Villa frá Brentford með árs millibili og áttu stóran þátt í uppgangi liðsins undir stjórn Emerys. Watkins er markahæsti leikmaður Villa í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Watkins neitaði að spila fyrir Villa í leiknum gegn Brighton um síðustu helgi. Eftir leik bað Emery framherjann um að útskýra fjarveru sína sjálfur. Á blaðamannafundinum í dag sagði Emery að enski landsliðsframherjinn hefði beðið samherja sína afsökunar á að hafa ekki viljað spila gegn Brighton. Villa tapaði leiknum, 4-0. Villa bíður krefjandi verkefni næsta mánudag þegar Konsa og félagar í Arsenal koma í heimsókn á Villa Park.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira