Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Andri Broddason skrifar 29. ágúst 2026 16:58 Benóný Breki, Andri Lucas og Tómas Bent voru í eldlínunni í dag. Samsett/Getty Margir Íslendingar voru í eldlínunni í dag og stóðu íslensku leikmennirnir sig vel. Andri Lucas Guðjohnsen, Benóný Breki Andrésson og Tómas Bent Magnússon spiluðu allir mikilvæg hlutverk með sínum liðum.
Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn Rovers þegar liðið tók á móti QPR í ensku B-deildinni í dag. Markalaust var í hálfleik en snemma í fyrri hálfleik skallaði Andri Lucas boltanum á Ryoya Morishita sem lagði hann snyrtilega í markið. Forskot Blackburn entist ekki lengi og jafnaði QPR nánast í næstu sókn. Á 74. mínútu náði QPR forystu leiksins með skalla frá Jimmy Dunne sem endaði á því að verða sigurmark leiksins. Þetta var fyrsta tap tímabilsins hjá Blackburn en liðið er í tíunda sæti ensku B-deildarinnar með fjögur stig þegar þrjár umferðir eru búnar. Nýtti mínúturnar vel Benóný Breki Andrésson byrjaði á bekknum þegar Stockport County tók á móti Wycombe Wanderers í ensku C-deildinni. Stockport County spilaði vel og var liðið að vinna 4-1 þegar Benóný Breki var settur inn á völlinn á 80. mínútu. Hann er ekki enn búinn að byrja leik á þessu tímabili en hann nýtti mínúturnar í dag vel og gaf sína fyrstu stoðsendingu tímabilsins. Situr í öðru sæti deildarinnar Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts þegar liðið tók á móti St. Johnstone í skosku úrvalsdeildinni. Hearts náði forystu snemma á níundu mínútu leiksins og bætti liðið við öðru marki 30 mínútum síðar. Í seinni hálfleik náði Ruari Paton að minnka muninn fyrir St. Johnstone en liðið náði ekki að jafna leikinn. Leikurinn endaði því með 2-1 sigri Hearts sem er í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar þegar þrjár umferðir eru búnar. Celtic er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.
Enski boltinn Skoski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira