„Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2026 08:30 Thierry Henry er spenntur að fylgjast með landa sínum Bradley Barcola á Englandi. Samsett/Liverpool/Getty Frakkinn Thierry Henry kveðst spenntur að fylgjast með landa sínum Bradley Barcola í ensku úrvalsdeildinni eftir skipti hans til Liverpool frá PSG í gær. Áhugavert verði að sjá hlutverk hans í Bítlaborginni.
Henry var sérfræðingur í Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöld eftir sigur Arsenal á Aston Villa og Barcola bar á góma eftir að hafa klárað skipti fyrir rúmlega 120 milljónir punda til Liverpool í gær. Barcola hefur spilað stóra rullu í liði PSG sem hefur orðið franskur meistari og unnið Meistaradeildina síðustu tvö ár. Hann tók þá einnig þátt í öllum átta leikjum Frakklands á HM í sumar og skoraði þrjú mörk. Spennan er því mikil fyrir því að fylgjast með kappanum í ensku úrvalsdeildinni og Henry er þar ekki undanskilinn. „Ég er mjög spenntur. En þetta veltur á því hvernig á að spila honum. Það er mikilvægt að koma honum í stöðuna einn á einn gegn varnarmanni. Hann mun sinna varnarvinnu fyrir þig, hann svindlar ekki á henni, en yfirleitt þegar hann gerði það fyrir PSG var hann ofarlega á vellinum og tók stutta spretti og komst þá í einn á einn stöðu,“ segir Henry og bætir við: What can Liverpool fans expect from Bradley Barcola? 💭 pic.twitter.com/jkBJYc7hIK— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) August 31, 2026 „Það sem hann hefur einnig, ef á að fara í skyndisóknir, er að hann er rosalega fljótur. En muntu láta hann verjast meira en hann sækir? Það er eitthvað sem gæti hentað honum illa. Það þarf að gæta að því hvernig hann er nýttur,“ „Svo eitt í lokin. Hann þarf að nýta færin sín aðeins betur. Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum,“ segir Henry.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira