Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. september 2026 08:17 Hannes Hólmsteinn Gissurarson gerði upp málin í Bítinu. Vísir/Vilhelm Hannes Hólmsteinn Gissurarsson prófessor emeritus í stjórnmálafræði segir fréttir af því að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna vera úr lausu lofti gripnar. Styrkir sem hann hafi útvegað hafi farið í bókaútgáfu en ekki í baráttu fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni. Þar vísaði Hannes í fréttaflutning Ríkisútvarpsins þar sem vísað er til umfjöllunar hollenska miðilsins Follow the Money um að fyrirtæki í eigu Hannesar hafi verið meðal íslenskra fyrirtækja sem hafi styrkt hugveitur hlynntar Brexit. Upphæðin hafi numið alls um fimmtíu þúsund evrum á árunum 2014 til 2017, því sem jafngildi sjö milljónum íslenskra króna á gengi dagsins í dag. „Ég get nú ekki annað en hlegið að því, að þeir birtu frétt um það, án þess að tala við mig að erlend heimasíða sem heitir Follow the money hefði komist að því að ég hefði veitt stórfé í Brexit-baráttuna í Bretlandi. Þetta er allt úr lausu lofti gripið og alveg fráleitt. Þetta var bara birt athugasemdalaust,“ segir Hannes um málið í Bítinu. „Þegar þú lest hinsvegar erlendu heimasíðuna þá kemur nú eiginlega ekkert fram um þetta. Það kemur bara fram að ég hafði milligöngu um það að útvega styrki til ákveðinnar stofnunar, sem hét Institute of Direct Democracy of Europe, IDDE frá íslenskum fyrirtækjum. Og síðan er bara sagt að þessi stofnun hafi líka tekið þátt í Brexit.“ Hannes fullyrðir að sannleikurinn sé hinsvegar sá að hann hafi útvegað styrki í ákveðið verkefni sem hafi verið fólgið í því að gefa út átta bækur undir merkjum Evrópu fórnarlambanna. Verkefnið sé fólgið í því að minnast fórnarlamba alræðisstefnunnar í Evrópu og hafi meðal annars gefið út bók sem hafi innihaldið greinar um kommúnisma eftir Bertrand Russell og bókina Konur í þrælakistum Stalíns eftir Elinor Lipper og Aino Kuusinen, ásamt fleiri bókum. „Við endurútgáfum þessar bækur með formálum eftir mig og í þetta fóru þessir peningar og þess er vandlega getið í bókunum að þetta hafi verið gert í samstarfi við IDDE og Brexit kom ekkert nálægt þessu, það er ekkert sem tengir þetta framtak við Brexit. Og sannleikurinn er sá, af því ég hef rekið nokkrar hugveitur með Ragnari og einn og svo framvegis, ég hef útvegið fjármagn frá íslenskum fyrirtækjum, það eru nefnd nokkur í útvarpsfréttinni eins og Brim og Hval og Ísfélaginu og fleirum og Almenna bókafélaginu og Almenna bókafélagið var sá sem gaf þetta út. Þannig það var bara ekkert athugavert við þetta og tengdist ekkert Brexit en fyrirsagnirnar voru um það að íslensk útgerðarfyrirtæki hefðu stutt Brexit baráttuna, alveg fráleitt, úr lausu lofti gripið.“ Þannig það kom enginn beinn fjárstuðningur frá þér í baráttuna í Brexit? „Nei, alls ekki. Enda er þetta þeirra barátta, mér myndi ekki detta í hug að taka þátt í því að safna peningum á Íslandi fyrir baráttu í Bretlandi, fyrir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Það kemur okkur ekkert við.“
Brexit Evrópusambandið Bítið Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira