Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. október 2026 07:30 Ellefu þingmenn Pírata sem sátu á þingi fyrir flokkinn á umbrotatíma hans, þar á meðal þegar flokkurinn varð stærstur allra flokka í skoðanakönnunum vorið 2016 og þegar hann vann kosningasigur um haustið. Fjórtán árum eftir stofnun róa Píratar lífróður. Flokkurinn flaug hæst í skoðanakönnunum í apríl 2016 eftir útgáfu Panamaskjalanna og mældist þá með 43 prósent, mest allra flokka á landinu. Um haustið fóru fram Alþingiskosningar þar sem Píratar lækkuðu flugið verulega. Þeir fengu samt 14,5 prósent atkvæða og tíu þingmenn kjörna. Hvar eru þessir Píratar í dag?
Stjórnmálaflokkurinn Píratar var stofnaður laugardaginn 24. nóvember 2012 en forgöngumenn fyrir stofnun hans voru þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir og forritarinn Smári McCarthy. Á stofnfundinum voru drög að lögum flokksins samþykkt og nafnið Píratar valið (út frá alþjóðlegu fyrirmyndinni Pirate Party). Flokkurinn lagði frá byrjun mikla áherslu á gagnsæi, beint lýðræði og baráttu gegn spillingu og notaðist við flatan valdastrúktúr. Flokkurinn bauð í fyrsta skipti fram til Alþingis árið 2013 undir listabókstafnum Þ (sem var síðan breytt í P árið 2016) og fékk 5,1 prósent atkvæða og þrjá þingmenn kjörna: Birgittu Jónsdóttur, Helga Hrafn Gunnarsson og Jón Þór Ólafsson. Flokkurinn var þá í stjórnarandstöðu með Bjartri framtíð, Vinstri grænum og Samfylkingu gegn ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Smæð þriggja manna þingflokksins kom ekki að sök og vöktu þingmennirnir þrír athygli fyrir skörulega frammistöðu sína á þinginu. Vorið 2015 var flokkurinn orðinn stærstur í könnunum með um og yfir þrjátíu prósent. Tæpur þriðjungur hljómar ótrúlega í dag en flokkurinn átti eftir að stækka enn meira í könnunum. Panamaskjölin voru gerð opinber í byrjun apríl 2016 í einum stærsta gagnaleka sögunnar. Þann 3. apríl birtist frægt viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins, þar sem hann gekk út eftir að hafa verið spurður út í aflandsfélagið Wintris. Viðtalið hrinti af stað atburðarás sem endaði með afsögn Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra tveimur dögum síðar. Ríkisstjórnin ætlaði að reyna að halda út kjörtímabilið en alþingiskosningum var á endanum flýtt til 29. október 2016. Sjá einnig: Píratar mælast með 43 prósent Píratar mældust mest með 43 prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem var tekin dagana 4. og 5. apríl og birtist þann 6. apríl. Flokkurinn mældist ekki með eins mikið fylgi annars staðar en var þó í kringum 21 til 27 prósent hjá Þjóðarpúlsi Gallúp frá apríl það árið og alveg fram að kosningum. Uppskera kosninganna var töluvert rýrari en kannanir spáðu fyrir um því Píratar fengu 14,5 prósent og tíu þingmenn (sem var þó þreföldun á þingmannafjölda). Flokkurinn endaði samt í minnihluta og var mynduð ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar (sem entist þó í aðeins 247 daga). Pírötum gekk ekki eins vel í kosningunum 2017 en fengu þó 9,2 prósent fylgi og sex þingmenn kjörna. Fjórum árum síðar voru úrslitin keimlík en þá fékk flokkurinn 8,63 prósent og sex þingmenn. Fylgi flokksins hrundi svo í kosningunum 2024 þegar hann fékk þrjú prósent atkvæða og engan mann kjörin. Síðan þá hefur fylgi Pírata verið um og yfir þremur prósentum, daðrað við Pilsnerfylgi á síðustu mánuðum og útlitið ekki bjart. Í dag eru tíu ár í dag liðin frá stærsta kosningasigri Pírata. Því hefur Vísir tekið saman þá þingmenn Pírata sem öfluðu flokknum 43 prósenta fylgis í könnunum auk þeirra sem náðu kjöri í kosningunum, rakið þingferla þeirra stuttlega og hvað hefur drifið á daga þeirra síðan. Ásta Guðrún Helgadóttir Ásta Guðrún fór inn á þing haustið 2015 fyrir Jón Þór Ólafsson sem hafði ákveðið að sitja aðeins í tvö ár á þingi. Ásta leiddi Pírata síðan í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2016 og varð þriðji þingmaður kjördæmisins. Hún tók við sem þingflokksformaður Pírata af Birgittu Jónsdóttur í janúar 2017 en steig til hliðar rúmum þremur mánuðum síðar vegna ágreinings við meirihluta þingflokksins. „Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þingflokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Pírata,“ sagði Ásta Guðrún um ákvörðunina. Fréttahaukurinn Eiríkur Jónsson fullyrti á vef sínum í júní það ár að Ásta Guðrún væri á leið í Samfylkinguna en hún neitaði því. „Þó svo að ég sé í sambúð með manni sem hefur verið formaður Ungra jafnaðarmanna þá held ég að ég haldi mig innan Pírata, í bili allavega. Þetta er algjört bull og það er engin hætta á að ég sé að fara úr Pírötum,“ sagði Ásta um fréttirnar. Eiríkur fullyrti að Ásta Guðrún hefði ekki lengur verið velkomin á þingflokksfundi Pírata eftir að hún var sett af sem þingflokksformaður og þannig verið stillt upp við vegg en Ásta neitaði þessu staðfastlega. Sjá einnig: „Þetta er bull“ Fyrir alþingiskosningarnar haustið 2017 (sem voru 364 dögum eftir kosningarnar 2016) hlaut Ásta Guðrún þriðja sæti í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi en hætti við eftir að hafa rætt við sína nánustu. „Þetta hefur verið gaman og gefandi starf að fá að sitja á þingi fyrir Pírata – og umfram allt er ég þakklát fyrir þann heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi – löggjafarþingi Íslands,“ segir Ásta. Hugur hafi ekki fylgt hjarta þegar hún bauð sig fram í prófkjörinu og hún viljað snúa sér að einhverju öðru. Sjá einnig: Ásta Guðrún hættir við að taka sæti á lista Pírata Ásta Guðrún fór vissulega ekki yfir í Samfylkinguna árið 2017 en þremur árum síðar, í desember 2020, birtist hún á lista yfir frambjóðendur sem hægt var að velja úr í flokksvali Samfylkingarinnar, hinni svokölluðu sænsku leið. Fyrir alþingiskosningarnar í september 2021 var Ásta Guðrún í sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Ásta Guðrún bauð sig svo fram til formennsku í Fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík gegn sitjandi formanni, Herði Oddfríðarsyni, í nóvember 2021. Ásta tapaði með aðeins einu atkvæði gegn Herði og tók sæti í stjórn. Innan við ári síðar varð Ásta formaður fulltrúaráðsins þegar Hörður hætti formennsku eftir ásakanir þingmanns Vinstri grænna á hendur honum. Síðar það ár tók Björk Vilhelmsdóttir við formennsku á aðalfundi fulltrúaráðsins. Sjá einnig: Ásta tekur við í stað Harðar Ásta Guðrún var síðan ráðin starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar í byrjun árs 2025 og hefur gegnt því starfi síðan. Birgitta Jónsdóttir Birgitta var reynsluboltinn í hópi nýstofnaðs stjórnmálaflokks Pírata og óformlegur leiðtogi hans í upphafi. Birgitta var oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi í kosningunum 2013, náði kjöri og var þá búin að sitja eitt kjörtímabil á Alþingi fyrir Borgarahreyfinguna sem umbreyttist í Hreyfinguna á miðju kjörtímabili eftir deilur milli þingflokks og stjórnar. Birgitta hafði verið þingflokksformaður Pírata fyrsta kjörtímabil flokksins og var það áfram eftir kosningarnar 2016. Ásta Guðrún tók hins vegar við embættinu í ársbyrjun 2017 en entist stutt í því. Einar Aðalsteinn Brynjólfsson tók við af henni og gegndi embættinu frá maí til september þegar Birgitta varð aftur þingflokksformaður. „Stjórnarkjörið er hluti af endurskipulagningu innan þingflokksins sem hefur staðið yfir í sumar en verkaskipting og valddreifing er nú jafnari en áður meðal stjórnarliða þingflokks,“ sagði í tilkynningu flokksins um ákvörðunina. Þessi þingflokksformennska Birgittu entist þó stutt því þremur dögum síðar, 15. september 2017, sprakk ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í kjölfar hneykslismáls vegna uppreistar æru kynferðisafbrotamanna. Degi síðar tilkynnti Birgitta að hún myndi ekki gefa kost á sér í næstu kosningum. „Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjörtímabil, óháð lengd þess. Það er ekkert sem getur fengið mig til að skipta um skoðun. Ég er snortin af þeirri bylgju hvatningar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í grasrót minni. Ástæða þess að ég hef ekki viljað koma með þessa yfirlýsingu strax er einfaldlega vegna þess að þessu kjörtímabili er ekki lokið, þrátt fyrir að núverandi stjórn sé fallin,” sagði í tilkynningu hennar. Vorið 2018 tilkynnti Birgitta svo að hún hefði sagt skilið við Pírata með Facebook-færslu sem hljóðaði svo: „Ég er hætt í hljómsveitinni (Píratar) sem ég stofnaði. Það er léttir.“ Í samtali við Jakob Bjarnar á Vísi sagðist hún hafa tilkynnt ákvörðunina á Twitter mörgum mánuðum fyrr og væri búin að segja sig úr nánast öllum Píratahópum á netinu. „Ég náttúrlega hef tekið þátt í að búa til tvo stjórnmálaflokka eftir hrun. En, mig dreymdi aldrei um að vera stjórnmálamaður eða valdamanneskja. Ég ber enga virðingu fyrir valdi,“ sagði hún í viðtalinu. Hún hefði reynt að koma á alvöru breytingum eftir efnahagshrunið en ekkert hefði breyst, Pírötum hefði brugðist bogalistin og þeir orðið samdauna kerfinu. Sjálf sagðist hún ætla að vinna að verkefnum sem tengdust beinu lýðræði eftir að hafa sagt skilið við stjórnmálin. Fyrstu þingmenn Pírata: Jón Þór, Helgi Hrafn og Birgitta.Vísir/vilhelm Birgitta var þó ekki alveg búin að segja skilið við Pírata því hún var tilnefnd í trúnaðarráð flokksins á félagsfundi 15. júlí 2019 ásamt tveimur öðrum, Agnesi Ernu Esterardóttur og Hrannari Jónssyni. Um var að ræða hitafund þar sem þingmennirnir Helgi Hrafn Gunnarsson og Halldóra Mogensen beittu sér gegn skipan Birgittu og tjáðu sig um slæma framgöngu hennar. Fór svo að Birgittu var hafnað með 55 atkvæðum gegn þrettán. Sjá einnig: Þingmenn Pírata beittu sér gegn Birgittu Daginn eftir fundinn birtist upptaka af honum á netinu þar sem mátti heyra og sjá það sem fram fór á fundinum. Helgi Hrafn sagði „fráleita pælingu“ að Birgitta hefði sóst eftir stöðunni í ljósi þess sem á undan hefur gengið, afsögn hennar úr Pírötum og gagnrýni á flokkinn. „Hún grefur undan samherjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar samherjum sínum þegar hún fær ekki það sem hún vill og gerir lítið úr vinnu þeirra sérstaklega þegar þeim gengur vel. Þetta er mín áralanga reynsla af því að vinna með Birgittu Jónsdóttur,“ sagði Helgi Hrafn á fundinum. Birgitta svaraði ræðu Helga Hrafns á fundinum og þakkaði þeim sem „þorðu“ að tilnefna sig í trúnaðarráð flokksins. Hún sagðist taka því ef það væri yfirgnæfandi meirihluti mótfallinn henni en þætti miður að heyra þau ummæli sem voru látin falla. „Mér finnst alveg ótrúlegt að heyra það sem fólk hefur sagt hér sem er í valdamiklum stöðum innan flokksins. Mér finnst það ótrúlegt og ég get alveg tekið margt til mín og ég hef oft gert það en upplifi bara svona ákveðið mannorðsmorð hér í kvöld og það er ekki fallegt,“ sagði Birgitta. Halldóra Mogensen beitti sér gegn ráðningu Birgittu.Vísir/Vilhelm Halldóra Mogensen tjáði sig jafnframt um ákvörðun sína, Birgitta hefði gert margt fyrir flokkinn en þessi vettvangur hentaði henni ekki. „Þeir aðilar sem fara í trúnaðarráð þurfa að njóta trausts. Birgitta er umdeild innan flokksins enda er hún búin að fara, og hún er alveg búin að tæta þingflokkinn og Pírata í borginni í sig í fjölmiðlum,“ sagði Halldóra. Fundurinn hrinti af stað mikilli umfjöllun um flokkinn og stigu fleiri fram til að lýsa samskiptum sínum við Birgittu og neikvæðri framgöngu hennar. Sara Elísa Þórðardóttir, varaþingkona Pírata, sagði í viðtali við Stundina að Birgitta væri gerandi en ekki þolandi og hefði beitt samstarfsfólk andlegu ofbeldi. Ásta Guðrún deildi viðtalinu við Söru á Facebook, sagðist hafa fengið kökk í hálsinn við að lesa það og að frásögnin hefði rímað vel við upplifun hennar af samstarfinu við Birgittu. „Deila og drottna, skapa sundrungu. Að ráða ríkjum í óreiðunni. Flatur strúktur á ekki að þýða neinn strúktur - en fyrir hana þá þýddi flatur strúktur óreiða, að það væri hægt að færa mörkin endalaust til, að setja óraunverulegar kröfur á aðra. Aðrar reglur gilda um hana en aðra. Þessi óreiða bjó til einræðisherra þar sem hinn frekasti fékk að ráða og þegar það var reynt að spyrna við því þá fór allt í uppnám,“ sagði Ásta um Birgittu. Birgitta rataði næst í fjölmiðla árið 2020 þegar kom í ljós að höfuðkúpa sem fannst árið 1994 við Ölfusárós var af Jóni Ólafssyni, skipstjóra frá Þorlákshöfn og föður Birgittu, sem talið er að hafi fallið í Sogið á aðfangadag 1987. Lýsti hún því að það væri mikil friðþæging að líkamsleifarnar hefðu fundist. Árið 2021 tilkynnti Birgitta síðan að hún væri gengin til liðs við Sósíalistaflokkinn. Það væri ekki til að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu heldur til að taka þátt í að móta framtíðina í fylkingu fólks sem væri ekki „fast í viðjum kjörtímabila“. Birgitta var í átjánda sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir kosningar til Alþingis 2021 en var ekki sjáanleg á listanum 2024. Lítið hefur farið fyrir Birgittu á sviði stjórnmálanna síðan þá en samkvæmt LinkedIn hefur hún verið stjórnarformaður IMMI, alþjóðlegrar stofnunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, síðan 2010. Þá hefur Birgitta nokkrum sinnum verið til umfjöllunar í fjölmiðlum á síðustu árum. Birgitta greindi frá því í viðtali við Vísi árið 2023 að hún væri hætt að ferðast utanlands og að það væri framlag hennar til loftslagsmála. Sjá einnig: Birgitta ætlar aldrei aftur af landi brott Í desember síðastliðnum var Birgitta í löngu viðtali á Heimildinni þar sem hún greindi frá því að hún væri með langvinnt Covid sem hefði gert að verkum að hún hefði dregið sig til hlés. „Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að fá þann heilsubrest sem ég hef verið að stríða við. Ég veit ekkert hvort ég muni einhvern tíma ná fullu vinnuþreki eða verða betri. Það er mjög erfitt að þurfa að sætta sig við það, en það er ein ástæðan fyrir því að ég er alltaf að pína mig til að gera aðeins meira en ég get,“ sagði hún um veikindin. Björn Leví Gunnarsson Björn Leví var í öðru sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 2016, í öðru sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2017 og oddviti þess 2021. Hann náði kjöri í öll þrjú skiptin og sat í átta ár á Alþingi fyrir Pírata. Á meðan Björn var á þingi sat hann í nefndum á borð við fjárlaganefnd, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, kjörbréfanefnd og velferðarnefnd og var um tíma fimmti varaforseti Alþingis. Björn var í þrígang ræðukóngur Alþingis, 2017-18, 2021-22 og 2022-23. Þá vakti Björn jafnframt mikla athygli fyrir fyrirspurnargleði sína en hann bar fram mörg hundruð fyrirspurnir um hin ýmsu mál til ráðherra, forseta Alþingis og ríkisstofnana á meðan hann sat á þingi. Fyrirspurnirnar vöktu oft ergelsi hjá ríkisstjórnarliðum og árið 2020 lagði Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um fjölda fyrirspurna Björns Levís og kostnaðinn við úrvinnslu þeirra. Björn Leví var oddviti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 2024. Flokkurinn hlaut 5,4 prósent atkvæða í kjördæminu en aðeins þrjú prósent á landsvísu og endaði með engan mann kjörinn. Eftir að Björn hætti á þingi hefur hann áfram verið virkur í samfélagsumræðunni, skrifar reglulega skoðanagreinar um hin ýmsu mál og er oft virkur í umræðum á samfélagsmiðlum. Samkvæmt Fésbókarsíðu Björns hefur hann starfað sem gagnaforritari hjá Háskóla Íslands síðan sumarið 2025. Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Einar Aðalsteinn var oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2016 og náði kjöri sem sjöundi þingmaður kjördæmisins. Á þingi sat Einar í allsherjar- og menntamálanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd og Þingvallanefnd og tók við af Ástu Guðrúnu sem þingflokksformaður Pírata í maí 2017 en gegndi því hlutverki skammt. Einar var aftur í oddvitasæti flokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2017 en náði ekki kjöri og sömu sögu er að segja um kosningarnar árið 2021. Hann ákvað í kjölfarið að láta staðar numið í pólitíkinni. Áður en Einar dembdi sér út í stjórnmálin hafði hann starfað sem kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Eftir að hann hætti í pólitíkinni sneri hann aftur í MA og kennir þar sögu, lögfræði, fjármálalæsi og stjórnmálafræði. Eva Pandóra Baldursdóttir Eva Pandóra var oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum árið 2016, náði kjöri og átti sæti í atvinnuveganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Drjúgan hluta kjörtímabilsins var Eva þó í fæðingarorlofi eftir að hafa eignast barn rétt fyrir kosningarnar. Hún skipaði sama sæti á lista Pírata fyrir kosningarnar 2017 en náði ekki kjöri. Eva Pandóra fór úr Pírötum yfir í Viðreisn.Margrét Rúnarsdóttir Tæpum tveimur mánuðum eftir að úrslitin voru ljós var Eva ráðin í starf sérfræðings á þróunarsviði Byggðastofnunar og sinnti því í þrjú ár. Hún hefur frá 2021 unnið sem deildarstjóri stjórnsýslu og miðlunar á þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Haustið 2024 tilkynnti Eva Pandóra að hún væri gengin úr Pírötum og væri komin í Viðreisn. „Þessi ákvörðun var hvorki auðveld né léttvæg, en ég tel hana nauðsynlega til að halda áfram að berjast fyrir þeim málefnum sem ég brenn fyrir,“ skrifaði hún um ákvörðunina. Hún skipaði síðan sjötta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og hefur komið inn sem varamaður í sex daga á yfirstandandi þingi. Fyrir utan pólitíkina og starfsferilinn þá fann Eva ástina í örmum Helga Hrafns, fyrrverandi þingmanns Pírata, árið 2023 og trúlofuðu þau sig haustið 2025 á siglingu um Miðjarðarhafið. Frá og með haustinu hefur Eva jafnframt haldið úti liðnum Kynlífið með Evu Pandoru á Vísi þar sem hún svarar lesendum um allt sem tengist kynlífi og samböndum. Gunnar Hrafn Jónsson Eftir að hafa unnið sem blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum, lengst af á fréttastofu Rúv, fór Gunnar Hrafn í framboð fyrir Pírata í alþingiskosningunum 2016. Hann skipaði annað sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður og var kjörinn sjöundi þingmaður kjördæmisins. Tveimur mánuðum eftir kosningar greindi Gunnar Hrafn frá því að hann hefði tekið sér veikindaleyfi frá þinginu vegna glímu við þunglyndi. Hann kom síðan fram í einlægu viðtali á Stöð 2 þar sem hann sagði sjúkdóminn vera of tabú og að hann vildi hvetja til vitundarvakningar. Gunnar bauð sig fram í prófkjöri Pírata fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin fyrir alþingiskosningarnar 2017 og hafnaði þar í fimmta sæti. Hins vegar tók hann ekki sæti á lista flokksins í sjálfum kosningunum. Tveimur mánuðum eftir kosningarnar greindi hann frá því að hann ætlaði í tíu daga áfengismeðferð. Sagðist hann hafa fallið eftir kosningarnar vegna fjölda pólitískra og persónulegra atburða, svika auk sjálfshaturs. Sjá einnig: „Ég vissi að ég væri að leika mér að eldinum“ Eftir það heyrðist lítið af Gunnari þar til hann greindi frá því í Facebook-færslu árið 2022 að Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, hefði bannað honum að bjóða sig fram í prófkjöri Pírata fyrir þingkosningarnar 2017. Helgi hafi sagt við Gunnar á fundi fyrir utan sjoppu í Vesturbænum að ef hann byði sig fram þá yrði hann tekinn af lífi í fjölmiðlum fyrir lélega mætingu á þinginu. Gunnar sagði Helga Hrafn hafa tjáð honum að dræm mætingin yrði rakin af blaðamanni ef hann hætti ekki við framboðið. Að sögn Gunnars hefði komið í ljós að blaðamaðurinn væri í raun Björn Leví, mótframbjóðandi hans í prófkjörinu, sem hefði tekið saman gögnin á bloggsíðu sinni. Gunnari var misboðið yfir framkomunni og sagði gróflega vegið að fólki sem glímdi við andleg veikindi. Björn Leví svaraði ásökunum Gunnars.Stöð 2/Ívar Fannar Björn Leví tjáði sig um færsluna og sagði mætingu þingmanna vera aðgengilega í öllum nefndum. Hann hefði oft þurft að mæta í nefndir fyrir Gunnar því hann hefði aldrei látið þingflokkinn vita hvenær hann ætlaði að mæta og hvenær ekki. Helgi Hrafn sagði samtal þeirra Gunnars ekki hafa átt sér stað fyrir prófkjörið heldur eftir það og hann sæi ekki eftir neinu. „Ég skammast mín ekki fyrir neitt, sem ég sagði eða gerði í þessu máli og myndi gera það sama aftur. Ef ég væri í hans stöðu, þeirri stöðu sem hann var í á þeim tíma, þá vona ég að einhver góður vinur minn myndi gera það sem ég gerði,“ sagði Helgi við Vísi um málið. Halldóra Mogensen Halldóra Mogensen tók nokkrum sinnum sæti á Alþingi fyrir Pírata sem varamaður kjörtímabilið 2013-16, var í þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 2016 og náði kjöri sem ellefti og síðasti þingmaður kjördæmisins. Halldóra var í öðru sæti á lista flokksins í kjördæminu í kosningunum 2017 og náði aftur kjöri sem síðasti þingmaður kjördæmisins. Fyrir kosningarnar 2021 var hún orðin oddviti Pírata í kjördæminu og komst þá örugglega inn. Á þinginu sat Halldóra í velferðarnefnd, framtíðarnefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og atvinnuveganefnd og var þingflokksformaður Pírata 2019–2020 og 2021–2023. Halldóra missti oddvitasætið fyrir kosningarnar 2024 til Lenýu Rúnar Taha Karim en þá náði flokkurinn ekki inn neinum manni. Þegar úrslitin lágu fyrir sagði Halldóra það hafa verið mikinn heiður að fá að að berjast fyrir hennar hjartans málum á þinginu. „Borgaralaun, skaðaminnkun, geðheilbrigðismál og afglæpavæðing, nýja stjórnarskráin, velsældarhagkerfið, náttúruvernd, menntamálin, gervigreindin og framtíðarsamfélagið. Ég vona að þessi mikilvægu mál lifi áfram og að framsýnin týnist ekki í áherslum þeirra flokka sem taka nú við völdum,“ sagði hún. Eftir að Halldóra datt af þingi hefur hún beitt sér sem sérfræðingur í gervigreind og var í sumar skipuð í vísindanefnd á vegum Evrópusambandsins sem á að kortleggja málaflokk gervigreindar og veita ráðgjöf um innleiðingu reglna er hana varðar. Halldóra var síðan kjörin formaður Mannvænnar, samtaka um mannvæna tækni. Helgi Hrafn Gunnarsson Helgi Hrafn var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir kosningarnar 2013 og var einn þriggja þingmanna Pírata sem náðu kjöri. Þar sat hann í kjörbréfanefnd og allsherjar- og menntamálanefnd og var formaður þingflokksins um tíma. Á meðan flokkurinn var á siglingu eftir útgáfu Panamaskjalanna tilkynnti Helgi sumarið 2016 að hann myndi ekki bjóða sig fram til þings um haustið. Hann væri ekki hættur í pólitík heldur ætlaði að helga sig grasrótarstarfi innan Pírata næsta kjörtímabilið. Þannig vildi hann sýna í verki þá hugsjón að byggja brú milli þings og þjóðar. Hann hefði þó fullan hug á að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Pírata árið 2020, eða fyrr ef stjórnarskrármálið krefðist þess. „Ég er ekki að fara neitt, þvert á móti, ég er að koma til baka. Inn í Pírata og vil gera Pírata að því sem Píratar vilja verða. Sem er lýðræðisafl, ekki bara þingflokkur og ekki bara kjörnir fulltrúar.“ Kjörtímabilið entist í eitt ár og ákvað Helgi að bjóða sig aftur fram fyrir alþingiskosningarnar 2017 sem oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann væri í „fáránlegri forréttindastöðu“ hafandi bæði náð kjöri og ákveðið að vera fyrrverandi þingmaður að eigin frumkvæði. „Það var ein mikilvægasta ákvörðun sem ég hef tekið og ég sé ekki eftir henni í eina sekúndu; hún var rétt og gaf mér tækifæri til að sjá þetta allt saman í nýju og betra ljósi,“ sagði Helgi Hrafn um ákvörðunina á Pírataspjallinu. Líkt og margir aðrir Píratar lagði Helgi Hrafn fram fjölda fyrirspurna, frumvarpa og þingsályktunartillagna meðan hann var á þingi og var jafnan meðal þeirra sem töluðu mest í ræðustól. Ekki heillaði það þó alla. Björn Bjarnason er duglegur að tjá sig á bloggi sínu. Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, skrifaði á bloggi sínu skömmu eftir kosningarnar 2017 að Píratar hefðu aldrei látið reyna á nein málefni, hvorki í kosningabaráttunni né í stjórnarmyndunarviðræðunum. Brynjar Níelsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, deildi þeirri grein Björns og fékk Helga í grillið í kjölfarið. Helgi sagði Brynjar ekki hafa lagt fram neitt þingmál á liðnu kjörtímabili og að hann væri að kasta grjóti úr glerhúsi þegar hann talaði um skoðana- og iðjuleysi annarra. Brynjar lét það ekki slá sig út af laginu og sagði Helga ekki vita hvað fælist í formennsku í þingnefndum. „Helgi metur framlag þingmanna eftir því hvað lagðar eru margar vitlausar fyrirspurnir og þingsályktanir fyrir þingið. Hann hefur greinilega aldrei starfað í stjórnarmeirihluta og veit ekki hvað felst í formennsku í þingnefndum,“ skrifaði Brynjar og veitti Helga svo ráð: „Kynntu þér málin sem eru til meðferðar og taktu afstöðu til þeirra áður en þú kæfir okkur hin í endalausum fyrirspurnum um ekki neitt.“ Ári fyrir kosningarnar 2021, þann 26. september 2020, tilkynnti Helgi Hrafn að hann myndi ekki bjóða sig fram í kosningunum því honum hugnaðist ekki að sitja of lengi á þingi og hann vildi vinna að umbótamálum utan þess. Hann væri þó ekki að stíga út úr stjórnmálum. „Ég verð áfram í flokknum og vonandi meira en áður. Það er ýmislegt í grasrótinni sem ég hef verið að sinna og langar að sinna meira, þá sér í lagi tæknimálum. Ég sé fyrir mér að gera meira af því,“ sagði Helgi Hrafn um ákvörðunina í löngu viðtali í helgarblaði DV. Tæpum mánuði eftir að Helgi tilkynnti þetta, 20. október 2020, átti hann eitt sitt eftirminnilegasta augnablik á þingi þegar jarðskjálfti að stærð 5,6 reið yfir á Reykjanesskaga. Skjálftinn fannst alla leið til Alþingis þar sem Helgi var í pontu að ræða breytingar á stjórnarskrá og brást skjótt við skjálftanum. Eftir að Helgi sagði skilið við stjórnmálin hefur hann starfað sem forritari hjá eigin hugbúnaðarfyrirtæki, Leetspeak Systems. Þá fann hann, eins og áður sagði, ástina í örmum fyrrverandi þingmannsins Evu Pandóru. Hann hefur hins vegar ekki alveg sagt skilið við stjórnmálin og birtist óvænt í 37. sæti á lista Viðreisnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Jón Þór Ólafsson Jón Þór var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 2013 og náði kjöri sem næstsíðasti þingmaður kjördæmisins. Hann sat í umhverfis- og samgöngunefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og þingskapanefnd þann þingveturinn. Jón Þór vakti nokkrum sinnum athygli fyrir framkomu í ræðustól, meðal annars fyrir að nota kveikjara í pontu til að leggja áherslu á mannréttindabrot Kínverja í Tíbet, þegja í tvær mínútur vegna læknaþjónustu á Íslandi og rífa þrjá tíu þúsund króna seðla við upphaf umræðu um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóðanna. Eftir um árs setu á þingi tilkynnti Jón Þór að hann myndi segja af sér þingmennsku á miðju kjörtímabili til að styrkja kosningabaráttu Pírata fyrir næstu kosningar. Varaþingmaður hans, Ásta Guðrún, hefði þannig tvö ár til að sanna sig og ná tökum á starfinu. Þegar Jón Þór hætti á þinginu 2015 sneri hann aftur í malbiksvinnu sem hann hafði unnið við í mörg ár yfir sumartímann áður en hann tók sæti á Alþingi. „Ég sleppi ekki þessu djobbi. Hér er hægt að hugsa. Ég er í malbikunarstöðinni sjálfri og mitt starf er bara sjálfvirkt þannig að hausinn á mér er alveg út af fyrir mig,“ sagði Jón Þór við Vísi á sínum tíma. Veturinn eftir fjallaði Vísir um að Jón Þór væri byrjaður að vinna sem stöðumælavörður þar til hann kæmist í malbikið á ný. Jón Þór ákvað að bjóða sig aftur fram fyrir kosningarnar 2016 og var þá oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi. Þann þingveturinn vakti hann aftur athygli fyrir framgöngu í ræðustól, þá fyrir að missa stjórn á skapi sínu í umræðu um skipan dómara við Landsrétt. Jón Þór bauð sig aftur fram til Alþingis 2017, var áfram oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi og náði kjöri. Þann þingveturinn var hann í atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og var um tíma formaður hennar. Í ársbyrjun 2021 tilkynnti Jón Þór að hann myndi ekki gefa kost á sér í næstu kosningum þar sem hann hefði náð markmiði sínu að tryggja sjálfbærni Pírata. Starfsfólkið væri fært, grasrótin öflug og þingflokkurinn aldrei verið samstilltari. Sagðist hann ætla að snúa aftur í malbikið eins og hann hefði gert á hverju sumri í 23 ár. „Það er friður í malbikinu,“ sagði hann í viðtali við Rúv. Frá því Jón Þór hætti í stjórnmálum hefur hann starfað sem þjálfari og núvitundarþjálfi hjá Reebok Fitness og fór jafnframt aftur í háskóla til að leggja nám á sálfræði. Smári McCarthy Smári var oddviti Pírata í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2016, náði kjöri og sat í efnahags- og viðskiptanefnd þann þingveturinn. Rétt fyrir kosningarnar birti Viðskiptablaðið frásögn sem byggði á myndum sem blaðinu höfðu borist af Smára að hleypa af hinum ýmsu byssum og sagði nafnlaus pistlahöfundurinn að Smári hefði töluverða reynslu af skotvopnum. Smári vísaði því á bug að hann væri mikill áhugamaður um byssur en hefði setið byssunámskeið hjá liðþjálfa í bandaríska hernum þegar hann starfaði í Afganistan. „Þetta var enginn byssutúrismi. Ég hef töluverða reynslu af skotvopnum, og verið á báðum endum þeirra í gegnum ýmsar uppákomur, flestar óskemmtilegar. Þekkjandi þær, vil ég alls ekki að þær séu almennt aðgengilegar í okkar samfélagi, og vil alls ekki að lögreglan gangi almennt með slíkt,“ skrifaði Smári um málið á Facebook-síðu sinni. Sjá einnig: Smári segir ásakanir um ósannsögli byggðar á misskilningi Einnig var Smári vændur um að hafa logið til um menntun sína í aðdraganda kosninganna þegar hann skráði stærðfræðinám sitt á LinkedIn en hafði ekki lokið því. Smári sagði málið á misskilningi byggt, hann hefði sett inn áætlaðan námstíma sinn þegar hann byrjaði í stærðfræðinni en ekki uppfært það eftir að hann hætti í náminu. Smári hélt oddvitasætinu í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar 2017, náði kjöri og sat þann þingveturinn í efnahags- og viðskiptanefnd, atvinnuveganefnd, utanríkismálanefnd, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES og þingmannanefnd Íslands og ESB. Haustið 2019 uppfyllti hann jafnframt æskudraum sinn þegar hann kláraði einkaflugmannspróf. Fyrir þingkosningarnar 2021 tilkynnti Smári að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram. Hann vildi bæði hvetja til nýliðunar og fannst sömuleiðis færni sín, þekking í tölvumálum og áhugi á umhverfismálum ekki nýtast nægilega vel á þingi. „Ég hef bara verið rosalega þreyttur og pirraður á því hvað það er mikið talað um að reyna að bregðast við loftslagsbreytingum en ótrúlega lítið verið gert í því,“ sagði Smári í viðtali við DV á sínum tíma. Eftir að Smári hætti á þingi vann hann stuttlega sem hugbúnaðarráðgjafi hjá tæknifyrirtækinu Winnow Tech. Jafnframt stofnaði hann árið 2021 nýsköpunarfyrirtækið Ecosophy sem sérhæfir sig í að gera loftslagsgögn aðgengileg og hugbúnaðarfyrirtækið Stratis sem framleiðir hugbúnað sem Úkraínuher hefur notaði í drónahernaði. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Þórhildur Sunna var í öðru sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2016, oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2017 og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi 2021 og náði kjöri í öll þrjú skiptin. Á meðan hún var á þingi sat Þórhildur í allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Þá var hún þingflokksformaður Pírata 2017–2019 og 2023–2024. Þórhildur Sunna sat í átta ár á þingi fyrir Pírata.Vísir/Vilhelm Þórhildur vakti athygli á Alþingi fyrir skörulega framgöngu sína á þinginu þar sem hún beitti sér fyrir bótum á dómsmálakerfinu, breytingum á stjórnarskrá, mannréttindum og loftslagsmálum. Þó að Píratar hafi verið flokkur án formlegs formanns má segja að Þórhildur hafi tekið að sér forystuhlutverk síðustu árin á þingi og kom jafnan fram í kappræðum fyrir flokkinn. Þórhildur var oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi í kosningunum 2024 en flokkurinn náði engum manni inn eins og áður hefur komið fram. „Þannig fór um sjóferð þá,“ sagði Þórhildur um úrslitin daginn eftir kosningarnar og bætti við: „Það hafa verið forréttindi að sitja á Alþingi og einn daginn geri ég það upp en ekki í dag.“ Eftir að Þórhildur datt af þingi sótti hún um embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands og að verða sendiherra Íslands en hreppti hvoruga stöðuna. Haustið 2025 tók hún svo við starfi alþjóðlegs framkvæmdastjóra Courage International, samtaka sem helga sig baráttunni fyrir fjölmiðla- og tjáningarfrelsi og vernd uppljóstrara og blaðamanna. Þórhildur hefur jafnframt látið málefni Palestínu sig varða síðustu ár. Hún hefur tekið þátt í samstöðu- og mótmælafundum hérlendis og tók þátt í mótmælaaðgerðum hafnarverkamanna í Genóa og Róm í nóvember 2025 ásamt fjölþjóðlegri sendinefnd aktívista, sem innihélt meðal annars Gretu Thunberg, gegn þátttöku ítalskra stjórnvalda í þjóðarmorðinu í Palestínu.
Píratar Alþingi Alþingiskosningar 2024 Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fleiri fréttir Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Sjá meira