Erlent

Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Liðsforinginn Pavel Chekov um borð í USS Enterprise í Star Trek. 
Liðsforinginn Pavel Chekov um borð í USS Enterprise í Star Trek. 

Leikarinn Walter Koenig er látinn 90 ára að aldri. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem hinn rússneski liðsforingi Pavel Chekov í vísindarskáldskaparheimi Star Trek.

Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety. 

„Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur flutningur settu varanlegt mark á kynslóðir aðdáenda um heim allan,“ er haft eftir talsmönnum Koenigs. 

Áhöfn USS Enterprise.Vísir/Getty

Hann hóf leikaraferil sinn snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann gekk síðan til liðs við Star Trek-áhöfnina í upphafi annarrar seríu þáttanna og fór með hlutverk Chekov í 36 af 50 þáttum og sex Star Trek-myndum sem komu út í kjölfar þáttanna. 

Star Trek þættirnir komu út á árunum 1966-1969 og voru sýndir á NBC sjónvarpsstöðinni. Þættirnir fylgja áhöfn geimskipsins USS Enterprise í leiðangri sínum um geiminn. 

Walter Koenig ólst upp í Manhattan í New York borg.Vísir/Getty

Þættirnir eiga að gerast á 23. öldinni og hittir áhöfnin ýmsar verur, þar á meðal hina þekktu Klingona. Þættirnir eiga sér aðdáendur um allan heim og hefur töluvert afþreyingarefni efni orðið til úr heimi Gene Roddenberry sem skrifaði fyrstu þætti Star Trek. 

George Takei, sem fór með hlutverk Hikaru Sulu í Star Trek, minnist vinar síns í Instagram-færslu. 

„Walter var meira en Chekov. Hann var rithöfundur, kennari, hugulsamur maður og tryggur vinur. Til aðdáendanna sem elskuðu hann í gegnum árin: takk fyrir. Hann elskaði ykkur líka.

Hvíl í friði, kæri vinur minn. Haltu áfram stöðugri stefnu.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×