Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 20:40 Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni Mynd:KA KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið.
Dagur Árni, sem sneri heim í KA frá Val í sumar, fór á kostum í leiknum og endaði með 12 mörk úr aðeins 14 skotum. Þar af voru fimm mörk úr fimm skotum af vítalínunni. Dagur Árni var kominn með fimm mörk í hálfleik og var staðan 15-13 KA í vil að honum loknum. Hann hóf hins vegar seinni hálfleikinn af enn meiri krafti og kom KA í 21-17 með sínu tíunda marki, þegar enn voru tuttugu mínútur eftir af leiknum. Bruno Bernat kom þá inná til að freista þess að verja víti frá Andra Þór Helgasyni, og tókst það, og smám saman juku KA-menn svo forskotið sitt og enduðu á að byrja tímabilið á öruggum sigri. Mikið álag var á Bjarna Ófeigi Valdimarssyni í sóknarleik KA í fyrra en hann nýtur þess nú að hafa Dag Árna sér við hlið og endaði með fimm mörk. Unglingalandsliðsmaðurinn Jens Bragi Bergþórsson skoraði svo sex mörk úr aðeins sjö skotum af línunni. Ágúst Elí Björgvinsson stóð í marki KA stærstan hluta leiksins og varði 12 skot af 37, eða 32%, eða mun betur en kollegar hans hjá HK þar sem Brynjar Vignir Sigurjónsson varði 4 af 28 skotum og Patrekur Guðni Þorbergsson ekkert skot. Andri Þór Helgason endaði markahæstur hjá HK með sjö mörk úr ellefu skotum, þar af þrjú úr fjórum vítum, og Aron Dagur Pálsson kom næstur með fjögur mörk. Öll tölfræði úr leiknum er fengin af vef HB Statz sem heldur utan um alla tölfræði úr Olís-deildunum.
Olís-deild karla HK KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira