Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 4. september 2026 08:01 Í upphafi árs skrifuðu ríki og sveitarfélög undir samning um að ábyrgð og fjármögnun á þjónustu við börn með fjölþættan vanda færðist frá sveitarfélögunum til ríkisins. Nú hefur ríkið þó brotið samkomulagið með því að skilgreina hópinn svo þröngt að börnin sem það átti að ná til falla ekki lengur undir ábyrgð ríkisins. Áralangur ágreiningur Í áraraðir hefur þjónusta við börn með fjölþættan vanda og fjármögnun hennar verið bitbein í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Framan af bar ríkið ábyrgð á úrræðum fyrir þessi börn, en þeim hefur fækkað jafnt og þétt á síðustu áratugum og sveitarfélögin hafa því í auknum mæli setið eftir með ábyrgðina. Ágreiningur um þjónustuna hefur ekki verið neinum til framdráttar, allra síst börnunum sjálfum og fjölskyldum þeirra. Birta fór þó til þegar Ásmundur Einar Daðason, fyrrum barna- og menntamálaráðherra kynnti farsældarlögin til sögunnar og aukið samtal hófst um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, lýsti málaflokknum sem þungum og erfiðum í umræðu á Alþingi í febrúar 2025 og sagði að til skoðunar kæmi að ríkið tæki yfir kostnað sem félli á sveitarfélögin. Þar með viðurkenndi ríkisstjórnin bæði vandann og þörfina fyrir breytta ábyrgðarskiptingu. Í mars 2025 náðu ríki og sveitarfélög síðan samkomulagi um breytta ábyrgðarskiptingu vegna þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Samkomulagið fól í sér að ríkið tæki yfir ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan sérstaklega viðkvæma hóp barna. Eðli málsins samkvæmt gengu fulltrúar sveitarfélaga því út frá því að ríkið ætlaði loksins að axla ábyrgð í málaflokknum. Kvað við annan tón Reglugerðin sem átti að útfæra samkomulagið kvað hins vegar við annan tón. Hún gengur töluvert skemur en samkomulagið sjálft og þrengir þann hóp barna sem fellur undir ábyrgð ríkisins. Með reglugerðinni hefur ríkið þannig einhliða þrengt skilgreiningu þeirra barna sem samkomulagið nær til, með þeim afleiðingum að hluti þeirra barna sem það var ætlað að ná til fellur nú utan þess. Barn með alvarlega fötlun og fjölþættan vanda, sem getur þurft sólarhringsþjónustu utan heimilis, fellur til dæmis ekki undir ábyrgð ríkisins ef ástæða búsetunnar utan heimilis er alvarleg fötlun, fjölfötlun eða miklar hjúkrunarþarfir. Það verður að teljast óboðlegt. Hér er um að ræða kostnaðarsaman málaflokk sem lengi hefur verið vanfjármagnaður. Sveitarfélög þurfa að sníða þjónustu sína að þeim fjármunum sem þau hafa úr að spila, en möguleikar þeirra til tekjuöflunar eru takmarkaðir og ráðast að verulegu leyti af þeirri umgjörð sem ríkið setur. Á sama tíma markar ríkið einnig ramma þeirrar þjónustu sem sveitarfélögum ber að veita. Ef ríkið ætlar ekki að taka ábyrgð á þessum hópi sem nú fellur út fyrir skilgreiningu reglugerðarinnar verður það að liggja skýrt fyrir hvernig ríkið ætlar að tryggja fjármögnun þjónustunnar með öðrum hætti. Þá verður einnig að horfast í augu við að ekki hafa öll sveitarfélög sömu aðstöðu eða sérfræðiþekkingu til að veita börnum með svo umfangsmiklar og flóknar þjónustuþarfir viðeigandi þjónustu. Einmitt þess vegna skiptir máli að ábyrgðin sé skýr og að tryggt sé að öll börn fái þá sérhæfðu þjónustu sem þau þurfa, óháð því í hvaða sveitarfélagi þau búa. Reykjavíkurborg hafði gert ráð fyrir að kostnaður vegna þjónustu við þessi börn yrði greiddur af ríkinu í samræmi við samkomulagið. Vegna þeirrar þrengingar sem reglugerðin felur í sér situr borgin nú eftir með rúmlega milljarð króna í ófjármagnaðan kostnað. Á sama tíma hefur dýrmætur tími farið til spillis. Sveitarfélög höfðu gengið út frá því að ríkið tæki við ábyrgðinni og gátu því ekki nýtt þann tíma til að byggja upp önnur úrræði. Lengi býr að fyrstu gerð. Það á ekki síst við þegar kemur að börnum sem glíma við fjölþættan vanda og þurfa mikinn stuðning frá samfélaginu. Því fyrr sem gripið er inn í, því meiri eru líkurnar á að bæta líðan barnsins, styðja fjölskylduna og koma í veg fyrir að vandinn vaxi síðar. Ég tek því undir áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga og skora á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og standa við þá ábyrgð og þær skuldbindingar sem ríkið tók á sig með samkomulaginu. Ríkið getur ekki annars vegar viðurkennt vandann og tekið á sig ábyrgðina með samkomulagi og hins vegar skilgreint sig frá þeirri ábyrgð í reglugerð. Höfundur er fulltrúi Framsóknar í velferðarráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Sveitarstjórnarmál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun