Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Sindri Sverrisson skrifar 4. september 2026 18:00 Michael Carrick er sáttur eftir sumarkaupin. Getty/Dan Mullan Michael Carrick, stjóri Manchester United, bar sig vel á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út í leikmannakaup sumarsins, nú þegar búið er að skella félagaskiptaglugganum í lás.
United styrkti sig sérstaklega á miðsvæðinu með því að fá Youri Tielemans frá Aston Villa, Andrey Santos frá Chelsea og Carlos Baleba frá Brighton, eftir brotthvarf Casemiro. Félagið bætti hins vegar ekki við sig vinstri bakverði og var nettó eyðslan 118 milljónir punda sem er minna en til að mynda hjá nýliðum Ipswich og Coventry. „Við fórum inn í félagaskiptagluggann með það að markmiði að koma út með sterkari hóp en við höfðum á síðasta tímabili og við höfum svo sannarlega bætt við hann. Mikið og gott starf var unnið í þeim efnum og staðan er eins og hún er hvað varðar fjármál og það sem við höfum úr að spila,“ sagði Carrick á blaðamannafundi í dag. United endurheimti jafnframt Marcus Rashford í sumar, þegar lánstíma hans hjá Barcelona lauk, og þeir Tielemans voru þeir einu í byrjunarliðinu í 5-2 sigrinum á Ipswich um síðustu helgi, sem ekki voru í liðinu síðasta vetur. „Ég er svo sannarlega himinlifandi með leikmennina sem við höfum fengið í hópinn og tel að við höfum gert virkilega góð viðskipti. Maður getur alltaf litið til baka og hugsað að það sé eitthvað annað sem við hefðum getað gert eða gætum hafa gert, en sumir hlutir verða einfaldlega ekki í boði. Í stórum dráttum tel ég að við séum í góðri stöðu með hópinn. Við erum með sveigjanlega leikmenn um allan völl sem geta spilað í mismunandi stöðum þegar þess gerist þörf,“ sagði Carrick í dag. United sækir Everton heim á sunnudaginn í leik sem hefst klukkan 13, á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Enski boltinn Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira