Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 7. september 2026 07:03 Í 75 ár hefur Krabbameinsfélag Íslands staðið með fólki á tímum þegar lífið tekur óvænta stefnu og áfall ber á dyr. Bak við þann árafjölda eru ótal sögur fólks og fjölskyldna þess, sögur af ótta og óvissu, en líka von, seiglu, samstöðu og nýjum styrk. Fyrir mér er starf Krabbameinsfélagsins eitthvað sem ég þekki af eigin raun og er óendanlega þakklát fyrir starfsemi þess. Árið 2021 greindist ég með brjóstakrabbamein. Meðan á meðferð stóð sótti ég námskeið fyrir krabbameinsgreinda og nýtti ég mér einnig íbúð þess. Á þessum tíma kynntist ég yndislegu fólki og naut þess að koma í Skógarhlíðina. Þegar meðferð lauk tók við tímabil sem kannski er minna rætt um. Fólk, bæði við þau greindu og eins úti í samfélaginu, sér gjarnan meðferðarlokin sem ákveðinn endapunkt, nú sé þessu lokið og lífið geti haldið áfram. En það er ekki endilega og eiginelga langt því frá svo einfalt. Líkami og hugur þurfa tíma til að takast á við nýjan veruleika og það getur tekið á að fóta sig aftur í lífinu eftir slíka reynslu. Svo eru það þau sem ljúka ekki meðferð og þurfa að lifa með krabbameini. Það skiptir miklu máli að geta leitað til fólks sem þekkir þessa vegferð, að þurfa ekki alltaf að útskýra já eða þegja því fólk vill ekki ræða svona óþægilega hluti, og fá faglega ráðgjöf og stuðning þegar þess er þörf. Takk fyrir mig. Krabbameinsfélagið býður fólki sem greinst hefur með krabbamein, aðstandendum og syrgjendum slíkan stuðning án endurgjalds. Þar starfa meðal annars félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar. Það er þjónusta sem getur skipt svo miklu máli, bæði meðan á veikindum stendur og þegar meðferðinni sjálfri er lokið. Í vor fékk ég svo tækifæri til að taka þátt í einstakri ferð, „Kastað til bata“, á Langá á Mýrum. Þar kom enn ein hlið þessa mikilvæga starfs í ljós. Ferðin var dásamleg; samvera, náttúra, kyrrð og dásamlegur matur í hópi kvenna sem deildu ákveðinni reynslu þótt saga hverrar og einnar væri ólík. Þar voru frábærir ráðgjafar og sjálfboðaliðar Krabbameinsfélagsins sem gáfu af tíma sínum, þekkingu og hlýju. Slíkt verður seint metið til fjár. Takk fyrir ykkur. Hér á Suðurnesjum eigum við einnig okkar eigið Krabbameinsfélag Suðurnesja, stofnað árið 1953. Í meira en sjö áratugi hefur það verið mikilvægur hluti nærsamfélagsins og veitt krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra þjónustu og stuðning. Það skiptir máli að slíkt skjól sé til staðar í heimabyggð. Kannski er það einmitt þetta sem 75 ára saga Krabbameinsfélags Íslands snýst um þegar allt kemur til alls. Ekki aðeins árafjöldi, starfsemi eða þjónustuþættir, heldur fólk sem stendur með og styður við annað fólk þegar mest á reynir. Við getum ekki alltaf valið þau verkefni sem lífið ber á borð fyrir okkur en það skiptir öllu máli að þurfa ekki að takast á við þau ein. Því fylgir fyrst og fremst þakklæti 75 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands. Þakklæti til fagfólksins, sjálfboðaliðanna, velunnaranna, stuðningsaðilanna, Krabbameinsfélags Suðurnesja og allra þeirra sem hafa lagt félaginu lið í gegnum tíðina. Því þó við vildum ekki þurfa á ykkur að halda er svo ómetanlegt að eiga ykkur að þegar við þurfum einmitt á ykkur að halda. Til hamingju með 75 árin og takk fyrir að vera til staðar fyrir okkur öll. Höfundur er þjónustuþegi og skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun