Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar 6. september 2026 15:01 Við höfum öll heyrt sögur um fatlað fólk sem fær ekki aðgang að stafrænni þjónustu, höfum fylgst með eldra fólki upplifa stafræna útilokun og jafnvel séð alvarleg mál þar sem brotið er á mannréttindum fólks. Og kannski er það einmitt þú sem hefur ákveðið að útiloka þessa hópa. Samt örugglega ekki, en ef þú hefur eitthvað að gera með miðlun upplýsinga eða þjónustu á stafrænu formi, þá eru allar líkur á því að þú sért óvart að útiloka fólk með fötlun eða aldurstengdar skerðingar. Allar ákvarðanir, frá hugmyndavinnu, vali á samstarfsaðila og vefumsjónarkerfi til hönnunar, textavinnslu og forritunar einstakra hluta, hafa áhrif á okkar hópa og möguleika okkar á að nálgast þjónustu til jafns við aðra. Það er auðvitað enginn sem ætlar sér að útiloka fólk með fötlun, enda er það brot á mannréttindum okkar, auk þess sem við erum, þegar sístækkandi hópur fólks með aldurstengdar skerðingar er talinn með, orðin ansi stór hópur notenda. Reynsla sýnir auk þess að aðgengilegar lausnir eru betri fyrir alla notendur. En það getur verið erfitt í nýsköpunar- og breytingarferlum að hafa auga fyrir oft mjög sértækum þörfum notendahópsins. Þá er líklegt að teknar séu rangar ákvarðanir sem er kostnaðarsamt að laga. Þetta er ástæðan fyrir því að þróaður var staðall fyrir stafrænt aðgengi og það er mikið fagnaðarefni að hann skuli nú hafa verið leiddur í lög á Íslandi. Staðallinn er EN 301 549 og byggir að hluta til á WCAG, sem sumir kannast við. Þessi staðall er innleiddur í íslenska löggjöf með Evróputilskipun 2016/2102, sem nú þegar hefur tekið gildi í ESB og Noregi. Tilskipunin byggir á fjórum stoðum: skiljanleika, skynjanleika, nothæfni og traustum lausnum. Þessar áherslur endurspeglast í kröfum sem gera ráð fyrir að stafræn þjónusta uppfylli lágmarksviðmið. Í framkvæmd treystir löggjöfin á aðgengisyfirlýsingu, sem allir þjónustuveitendur á vegum hins opinbera þurfa að gera. Í Noregi og ESB gildir þetta einnig um þjónustuveitendur á almennum markaði og það er engin ástæða til þess að halda að það verði ekki þannig hér á landi innan tíðar. Í aðgengisyfirlýsingu þarf að fara yfir hvernig þjónustan mætir þeim átta fötlunarhópum sem eru skilgreindir í staðlinum og benda á varaleiðir fyrir þá sem ekki geta nýtt þjónustuna rafrænt og hvenær þau munu geta nýtt sér hana á sambærilegan hátt og aðrir. Hér skiptir því sköpum að aðgengi fyrir fólk með fötlun hafi verið miðlægt í öllu þróunarferli, svo að það komi ekki á óvart þegar birta á aðgengisyfirlýsingu að kerfið sé á einhvern hátt óaðgengilegt fyrir okkur eða stoðtækni okkar. Ef ekki er komið til móts við þarfir notenda eru kvörtunarleiðir og sektarheimild – sem þarf vonandi ekki að grípa til. Það er því þín ábyrgð, sem stjórnanda, verkefnastjóra, innkaupastjóra, ritstjóra, hönnuðar og forritara, að kunna á stafrænt aðgengi og vita hvernig það lítur út innan þíns verksviðs. Þetta krefst þekkingar, endurmenntunar og aðgangs að fræðslu. Það er enginn sem vaknar einn morgun og skilur allt í einu upp á eigin spýtur þarfir allra fötlunarhópa – þess vegna er staðall og vottunarleið. Við hjá ÖBÍ réttindasamtökum leggjum mikla áherslu á að ný löggjöf um stafrænt aðgengi hljóti brautargengi. Við viljum að Ísland verði best í heimi í þessu eins og í svo mörgu öðru sem snýr að nýsköpun. En það krefst þess að við tökum okkur tak og menntum okkur. Við þurfum ekki að finna upp hjólið, margt er vel gert erlendis og við getum lært af því og gert enn betur. Þess vegna höfum við í ÖBÍ hafið samstarf við IAAP Nordic, sem eru samtök aðgengissérfræðinga á Norðurlöndum, og væntum mikils af því samstarfi. Ný aðgengislöggjöf gerir ráð fyrir samráði við notendur. Það eru notendur sem þróa staðalinn og það eru notendur sem geta frætt þjónustuveitendur um þarfir sínar. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gerir ráð fyrir bæði stafrænu aðgengi almennt og viðeigandi aðlögun þegar þess er þörf. Við hjá ÖBÍ erum alltaf reiðubúin í samtal og fræðslu. Ef við ætlum okkur að losna við ljót mál um stafrænt misferli og útlokun, ef við ætlum að sjá hagræðingu af stafrænni þróun raungerast og ekki bara kalla á aðstoð aðstandenda og félagsþjónustu og ef við ætlum að vera brautryðjendur í að veita fötluðu fólki tækifæri og tryggja eldra fólki áframhaldandi sjálfstæði þá þurfum við öll að kunna á stafrænt aðgengi. Höfundur er stafrænn verkefnastjóri hjá ÖBÍ réttindasamtökum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Stafræn þróun Stafrænt ofbeldi Mannréttindi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun