Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar 8. september 2026 10:03 Fyrrverandi forseti Vigdís Finnbogadóttir sagði eitt sinn: „Ef íslenskan hverfur tapast þekking og við hættum að vera þjóð.“ Enn á ný fáum við vondar niðurstöður í lesskilningi í PISA. Enn á ný bregðumst við íslenskum börnum og skerðum tækifæri þeirra til lífsgæða. Í hádeginu voru nýjustu niðurstöður PISA birtar. Í ljós kemur að um 44% 15 ára nemenda hafa ekki náð grunnfærni í lesskilningi og hlutfallið hefur aukist. Það er nærri helmingur íslenskra ungmenna. Frá aldamótum hefur lesskilningi íslenskra nemenda hrakað meira en í nokkru öðru OECD-ríki. Að horfa upp á slíkt neyðarástand árum saman án þess að grípa til róttækra breytinga er vanræksla í garð barna. Árum saman hefur stefnunni í grundvallaratriðum ekki verið breytt, enginn axlað ábyrgð og meðvirknin með kerfinu verið svo gott sem alger. Ef báturinn lekur alltaf hraðar og hraðar þarf að gera við hann en ekki ausa hægar úr honum. Lesskilningur snýst um miklu meira en niðurstöður á prófi. Barn sem nær sterkum tökum á lestri fær fleiri orð til að hugsa með, meiri getu til að tjá eigin tilfinningar og skoðanir og betri forsendur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Þetta snýst líka um íslenskuna. Með sama áframhaldandi skeytingarleysi höldum við áfram að veikja stöðu hennar. Færri munu geta lesið íslenskan texta af fullum skilningi, fylgst með dýpri umræðu á íslensku og sótt sér þekkingu í íslenskar bókmenntir, sögu og menningu. Þegar okkur skortir orðin, hugsunina og lesskilninginn til að skilja eigin sögu og menningu raknar eitthvað meira upp en námsárangur. Þá veikjast þau sameiginlegu tengsl sem gera okkur að þjóð. Þetta er ekki óhjákvæmileg þróun. Í næstu grein mun ég fara yfir leiðir til að koma okkur aftur á rétta braut. Leiðir sem eru vel færar og hafa þegar verið farnar annars staðar með frábærum árangri. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Fyrrverandi forseti Vigdís Finnbogadóttir sagði eitt sinn: „Ef íslenskan hverfur tapast þekking og við hættum að vera þjóð.“ Enn á ný fáum við vondar niðurstöður í lesskilningi í PISA. Enn á ný bregðumst við íslenskum börnum og skerðum tækifæri þeirra til lífsgæða. Í hádeginu voru nýjustu niðurstöður PISA birtar. Í ljós kemur að um 44% 15 ára nemenda hafa ekki náð grunnfærni í lesskilningi og hlutfallið hefur aukist. Það er nærri helmingur íslenskra ungmenna. Frá aldamótum hefur lesskilningi íslenskra nemenda hrakað meira en í nokkru öðru OECD-ríki. Að horfa upp á slíkt neyðarástand árum saman án þess að grípa til róttækra breytinga er vanræksla í garð barna. Árum saman hefur stefnunni í grundvallaratriðum ekki verið breytt, enginn axlað ábyrgð og meðvirknin með kerfinu verið svo gott sem alger. Ef báturinn lekur alltaf hraðar og hraðar þarf að gera við hann en ekki ausa hægar úr honum. Lesskilningur snýst um miklu meira en niðurstöður á prófi. Barn sem nær sterkum tökum á lestri fær fleiri orð til að hugsa með, meiri getu til að tjá eigin tilfinningar og skoðanir og betri forsendur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Þetta snýst líka um íslenskuna. Með sama áframhaldandi skeytingarleysi höldum við áfram að veikja stöðu hennar. Færri munu geta lesið íslenskan texta af fullum skilningi, fylgst með dýpri umræðu á íslensku og sótt sér þekkingu í íslenskar bókmenntir, sögu og menningu. Þegar okkur skortir orðin, hugsunina og lesskilninginn til að skilja eigin sögu og menningu raknar eitthvað meira upp en námsárangur. Þá veikjast þau sameiginlegu tengsl sem gera okkur að þjóð. Þetta er ekki óhjákvæmileg þróun. Í næstu grein mun ég fara yfir leiðir til að koma okkur aftur á rétta braut. Leiðir sem eru vel færar og hafa þegar verið farnar annars staðar með frábærum árangri. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar