Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar 8. september 2026 18:31 Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er haldinn ár hvert 8. september. Sjúkraþjálfarar skipa fjölmennustu stétt landsins á sviði endurhæfingar og spila stórt og mikilvægt hlutverk í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Þema dagsins í ár er hlutverk sjúkraþjálfunar og líkamlegrar virkni í forvörnum, meðferð og endurhæfingu hjarta- og æðasjúkdóma. Einn þessara sjúkdóma sem vert er að vekja athygli á er heilablóðfall. Heilablóðfall verður þegar blóðflæði til hluta heilans truflast, annaðhvort vegna blóðtappa (það verður blóðþurrð) eða vegna blæðingar. Afleiðingarnar geta verið alvarlegar og truflað mjög daglegt líf og er heilablóðfall algengasta orsök fötlunar hjá vestrænum þjóðum. Á Íslandi má gera má ráð fyrir að u.þ.b. 400 manns fái heilablóðfall á ári hverju, sem þýðir að einn af hverjum 7 má búast við að fá heilablóðfall á lífsleiðinni. Áhættuþættir eru fjölmargir, sumir eru óbreytanlegir, s.s. aldur og erfðir. Aðra getum við haft áhrif á, s.s. háan blóðþrýsting, reykingar, sykursýki, hækkaðar blóðfitur og ekki hvað síst hreyfingarleysi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið út að hreyfingarleysi er nú talið 4. stærsti áhættuþátturinn fyrir dauðsföll á heimsvísu. Í forvarnarskyni gegna sjúkraþjálfarar mikilvægu hlutverki í þjálfun við að viðhalda og efla líkamlegt ástand og virkni einstaklinga og draga þannig úr líkum á heilablóðfalli. Aukin líkamleg virkni getur einnig haft jákvæð áhrif á aðra áhættuþætti eins og blóðþrýsting, blóðsykur, blóðfitur og streitu. Regluleg hreyfing 5 sinnum í viku 30 mín í senn er talin geta lækkað líkur á heilablóðfalli um 25%. Ef einstaklingur hefur verið mjög óvirkur líkamlega, getur oft þurft að fara rólega af stað og vinna sig smám saman upp í þessi tímaviðmið, t.d. ganga stutta vegalengd, standa upp og setjast, stíga upp í þrep. Einnig gæti þurft að aðlaga þjálfun einstaklings sem er ef til vill með önnur heilsufars vandamál. Þarna eru sjúkraþjálfarar með sérþekkingu til að aðlaga þjálfun fyrir hvern og einn. Sem sérfræðingar í hreyfingu og þjálfun, gegna sjúkraþjálfarar lykilhlutverki í þverfaglegu teymi einstaklings sem fengið hefur heilablóðfall. Þeir hafa sérþekkingu í mati á breyttri líkamlegri færni og styrk og hvaða þjálfun hentar hverjum og einum út frá þeim truflunum sem heilablóðfall hefur valdið. Almennt gildir að þeim mun fyrr sem gripið er inn í, því betri eru horfurnar. Á það bæði við um bráða læknisfræðilega meðferð en einnig um aðkomu sjúkraþjálfara og líkamlega þjálfun. Samkvæmt alþjóðlegum leiðbeiningum hefst sjúkraþjálfun á bráðasjúkrahúsi yfirleitt innan 48 klst frá upphafi heilablóðfalls eða þegar ástand einstaklings er læknisfræðilega stöðugt. Afleiðingar heilablóðfalls geta verið vægar og eftirstöðvar litlar en geta einnig verið alvarlegar og haft veruleg áhrif á getu til daglegrar færni, s.s. vegna skerðingar á hreyfifærni, jafnvægi, tali, sjón og vitrænni getu. Aðkoma sjúkraþjálfara er alltaf í samráði við getu einstaklings og raunhæf markmið eru sett í sameiningu. Það getur falið í sér að æfa daglega færni, s.s. flutninga, standa upp og setjast, efla handafærni, bæta jafnvægi á göngu og draga þannig úr fallhættu, bæta göngugetu, auka styrk og færni og svo framvegis. Jafnvel þó skerðing sé ekki umtalsverð og einstaklingur rólfær við góðar aðstæður, getur hún valdið því að einstaklingur ræður verr við dagleg verkefni, verður óöruggur og kemst auðveldlega í vítahring vanvirkni og líkamsástand drabbast niður. Athafnir sem áður voru auðveldar geta allt í einu reynt verulega á, eins og að standa upp úr stól, ganga stiga og fara á salerni. Því fylgir það markmið allri þjálfun á hreyfifærni, að efla öryggi og sjálfstraust einstaklings. Það er því til mikils að vinna fyrir einstakling að gera sitt besta til að draga úr líkum á heilablóðfalli og fyrir heilbrigðisyfirvöld að efla forvarnir. Fyrir þá sem glíma við eftirstöðvar heilablóðfalls þarf að gæta að áframhaldandi endurhæfingu eftir að bráðainnlögn á sjúkrahúsi lýkur. Sú endurhæfing gæti farið fram á endurhæfingardeildum, göngudeildum eða í heimahúsi. Að því sögðu þarf aðgengi að endurhæfingu, þar með talið sjúkraþjálfun, að vera tryggt, óháð efnahag, á öllum stigum heilbrigðiskerfisins. Hreyfum okkur – fyrir heilsuna í dag og sjálfstæðið á morgun. Höfundur er sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar