Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 10. september 2026 17:31 EES-samningurinn er af mörgum talinn hafa reynst Íslandi vel. Hann hefur veitt íslenskum fyrirtækjum aðgang að evrópskum markaði, auðveldað viðskipti með vörur og þjónustu svo og skapað íslenskum borgurum tækifæri til náms, atvinnu og búsetu erlendis. Fríverslunarsamningar geta styrkt íslenskt atvinnulíf án þess að Ísland þurfi endilega að ganga inn í dýpra pólitískt samband, en þá kemur upp vandi við EES. Vandinn felst m.a. í því að fjórfrelsið er oft rætt eins og það sé ein óskipt heild: frjáls för vöru, þjónustu, fjármagns og fólks. Þessi fjögur frelsi eru í raun mjög ólík og afleiðingar þeirra fyrir Ísland eru ekki þær sömu. Það sem getur verið hagkvæmt fyrir stóran og fjölmennan markað í miðri Evrópu þarf ekki að henta litlu, einangruðu eylandi með um 400 þúsund íbúa langt úti í Norður-Atlantshafi. Vörur og þjónusta Frjáls viðskipti með vörur og þjónustu hafa að mörgu leyti verið Íslandi til hagsbóta. Þau auka samkeppni, geta lækkað verð og gefa íslenskum fyrirtækjum aðgang að stærri mörkuðum. Íslenskir neytendur njóta einnig meira vöruúrvals og fyrirtæki geta nýtt sér sérhæfingu og samstarf yfir landamæri. Þessi hluti EES-samstarfsins er því almennt auðvelt að verja að teknu tilliti til verndarsjónarmiða, t.d. landbúnaðar, en Ísland hefur hag af því að geta selt vörur og þjónustu erlendis og keypt það sem hagkvæmara er að framleiða annars staðar. En taka þarf mið af landfræðilegri legu landsins. Flutningar til og frá landinu eru dýrari og flóknari en milli nágrannaríkja á meginlandi Evrópu. Reglur sem eru samdar fyrir þétt tengt evrópskt samgöngukerfi geta líkst brandara skrifaðar á skrifstofu í Brussel. Fjármagn og fjármálastöðugleiki Frjálst flæði fjármagns getur auðveldað fjárfestingar og tengt íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega markaði. En lítið hagkerfi er viðkvæmara fyrir fjármagnsflutningum en stórt hagkerfi. Fjármagn getur streymt hratt inn og út úr landinu og haft mikil áhrif á gengi gjaldmiðilsins, fasteignaverð, skuldir og fjármálastöðugleika. Reglur sem kunna að vera skynsamlegar fyrir stóran sameiginlegan fjármálamarkað þurfa því ekki að henta Íslandi jafn vel. Þegar fjármálakerfi er lítið geta sveiflur orðið meiri og afleiðingarnar víðtækari. Ísland þarf því að hafa nægilegt svigrúm til að bregðast við sértækum aðstæðum í stað þess að vera bundið af reglum sem taka fyrst og fremst mið af stærri hagkerfum. Mikilvægt er að reglum verði ekki þröngvað á aðra s.s. Ísland gegnum EES, eins og samningurinn hefur þróast. Frjáls för fólks Frjáls för fólks getur verið jákvæð þegar hún auðveldar fólki að vinna, læra og búa þar sem tækifærin eru best. Hún getur einnig hjálpað íslensku atvinnulífi að manna störf og aukið tengsl Íslands við önnur Evrópulönd. En áhrif fólksflutninga eru ekki þau sömu í öllum ríkjum. Fyrir lítið samfélag getur hröð fjölgun íbúa haft mikil áhrif á húsnæðismarkað, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, innviði og félagslega samheldni. Ísland hefur takmarkaða getu til að bregðast hratt við miklum breytingum og e.t.v. dýrum m.v. íslenskar aðstæður og strjálbýli. Reglur samdar fyrir þéttbýl svæði með mildari veðráttu og hundraði milljóna íbúa geta því verið slæmar fyrir íslenskar aðstæður. Þetta þýðir ekki að öll alþjóðleg samvinna eða allir fólksflutningar séu neikvæðir. Hins vegar verður að viðurkenna að frjáls för fólks hefur aðrar og oft mikið viðkvæmari afleiðingar, en frjáls viðskipti með vörur og þjónustu. Ekki er hægt að líta á þessi atriði sem jafngild eða gera ráð fyrir að þau hafi sömu áhrif. EES og íslenskt sjálfstæði Stærsta vandamálið er að EES-samningurinn hefur þróast þannig að sífellt stærra regluverk Evrópusambandsins verður hluti af íslenskum lögum. Ísland hefur takmörkuð áhrif á mótun þessara reglna og stöðugt minnkandi og hefur ekki atkvæðisrétt við endanlega setningu þeirra að vilja stóru ríkjanna. Því skapast stór lýðræðislegur og pólitískur halli sem mun stöðugt vaxa þegar reglur, sem henta ekki íslenskum aðstæðum, verða bindandi án þess að haldbærum vörnum verði við komið. Ef EES-samstarfið á að byggjast á því að Ísland taki við öllum reglum innri markaðarins, án þess að geta hafnað þeim þáttum sem reynast íslenskum hagsmunum skaðlegir, verður sífellt erfiðari að verja EES samninginn. Sérstaklega á þetta við þegar fjórfrelsið er meðhöndlað sem eina óaðgreinanleg heild, þrátt fyrir að afleiðingar einstakra frelsisþátta séu mjög ólíkar. Ísland getur því ekki einfaldlega samþykkt allt fjórfrelsið sem eitt pakkaúrræði. Frjáls viðskipti með vörur og þjónustu geta verið hagkvæm, en frjálst flæði fjármagns og fólks getur skapað verulega áhættu fyrir lítið og viðkvæmt samfélag. Ef EES-samningurinn krefst þess að Ísland samþykki allar þessar reglur án raunverulegs svigrúms til að vernda eigin hagsmuni, verður hann að lokum óásættanlegur. Meginspurningin ætti því að vera hvort EES þjóni íslenskum hagsmunum í heild sinni, ekki aðeins hvort einstakir hlutar samningsins séu gagnlegir. Ísland þarf að geta tekið þátt í evrópsku efnahagssamstarfi án þess að fórna getu sinni til að setja reglur sem taka mið af smæð landsins, legu þess og sérstöðu. 26. október hefst flug 3 í viku til Beiging með stoppi í Kaupmannahöfn fyrir u.þ.b. 140,000 báðar leiðir. Veröldin stækkar. Nei við enn nánara samstarfi við ESB (kíkja í pakkann?) er því guðs blessun. Höfundur er fjármálahagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun