Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Agnar Már Másson skrifar 10. september 2026 22:59 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. vísir/anton Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar.
Í ályktun lýsir stjórn VR þungum áhyggjum af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir 2027 og segir það að óbreyttu draga úr líkum á að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti haldið gildi sínu. „Stjórnin krefst þess að ríkisstjórnin og Alþingi endurskoði frumvarpið með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, dragi úr fyrirhuguðum álögum á heimilin, frysti opinberar gjaldskrár og leggi fram raunverulegar aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum,“ segir í ályktuninni. Þar er sömuleiðis bent á að við undirritun síðustu kjarasamninga hafi ríki og sveitarfélög skuldbundið sig til að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og gera gangskör í húsnæðismálum. Stjórn VR segir að við það hafi ekki verið staðið og það, auk verðhækkana hjá fyrirtækjum, hafi leitt til þess að forsendur kjarasamninga séu nú brostnar þar sem verðbólga mælist nú yfir viðmiði samninganna. VR, sem er stærsta stéttarfélag landsins, segist hafa kallað eftir því að stjórnvöld snúi af braut og virði skuldbindingar sínar gagnvart kjarasamningum, ekki síst með því að frysta gjaldskrár og hækka þær ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að hækka gjaldskrár í takti við verðbólgu, sem getur viðhaldið spíral verðbólgu og hárra stýrivaxta,“ skrifar stjórnin. Enn fremur krefst VR þess að verðþak á olíu verði leitt í lög að nýju og vari eins lengi og olíukrísan, en brentolíuverð er tekið að hækka verulega á ný og er í kvöld komið í um tæplega 108 Bandaríkjadali á tunnu, samkvæmt oilprice.com. Þá snarhækkaði olíuverð á Íslandi um mánaðamótin þegar tímabundin virðisaukaskattslækkun á bensíni féll úr gildi og stjórn VR telur það sæta furðu að sú aðgerð sem ríkisstjórnin réðst í fyrr á árinu sé látin renna út í sandinn án umræðu. Þetta muni valda hækkun á verðbólgu sem, líkt og gjaldskrárhækkanir, skili sér inn í aukinn verðbólguþrýsting og þar með inn í húsnæðiskostnað fólks. VR telur því þörf á að ríkisstjórnin grípi til „afgerandi aðgerða í húsnæðismálum“. Stjórnin styður boðaða leigubremsu og bætt réttindi leigjenda, en telur að stjórnvöld verði að grípa til raunhæfra aðgerða sem stuðli að stöðugleika á húsnæðismarkaði til framtíðar. „Eins og staðan er núna er ekkert sem eykur bjartsýni á að svo megi verða,“ ályktar stjórnin og tekur fram að til standi að draga úr stofnframlögum til almenna íbúðakerfisins og lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis. Þá verði húsnæðis- og barnabótum áfram leyft að rýrna þótt þær séu „meðal markvissustu leiða til að styðja við heimili í viðkvæmri stöðu“. Einnig muni breytingar á útreikningi persónuafsláttar auka á skattbyrði launafólks. „Samandregið er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar köld kveðja til launafólks sem þarf nú að takast á við forsendubrest kjarasamninga, vantraust gagnvart stjórnvöldum og fyrirtækjum og afleiðingar af fjögurra ára hávaxtastefnu,“ segir í niðurlagi ályktunarinnar.
Kjaramál Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stéttarfélög Vinnumarkaður Alþingi Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira