Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Smári Jökull Jónsson skrifar 12. september 2026 16:02 Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm/Einar Forstjóri Icelandair segir að ef flugvirkjar samþykki að fara í verkfall hafi það verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem nú þegar glími við krefjandi aðstæður. Hann segir að þó samningur flugvirkja sé sex ára gamall hafi komið til hækkanir á samningstímabilinu í takt við þróun á almennum vinnumarkaði.
Atkvæðagreiðsla um ótímabundið allsherjarverkfall stendur nú yfir hjá Flugvirkjafélagi Íslands og lýkur henni á mánudag. Óskar Einarsson formaður félagsins sagði í viðtali á Vísi í gær að flugvirkjar hafi dregist aftur úr almennri launaþróun og segir ástæðu þess að deiluaðilar séu nú staddir á þeim stað sem þeir eru, vera þá að kjarasamningur hafi verið fastur síðan 2020 og aðrir hafi fengið launahækkanir umfram flugvirkja. Segir flugvirkja hafa fengið hækkanir á samningstímanum Forstjóri Icelandair segir félagið vera búið að teygja sig eins langt og það geti. „Við erum búin að leggja fram upplegg sem er í takt við það sem hefur verið að gerast á hinum almenna vinnumarkaði og í ljósi ástandsins í hagkerfinu og horfandi á háa vexti og verðbólgu að þá verðum við að sýna ábyrgð þar eins og aðrir,“ sagði Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er rétt hjá Óskari að þessi samningur hefur verið við lýði síðan 2020 en það hafa komið til hækkanir á samningstímabilinu. Þannig að okkar viðsemjendur, flugvirkjar, hafa fengið hækkanir algjörlega í takt við það sem að hefur gerst á hinum almenna vinnumarkaði,“ bætir Bogi Nils við. Icelandair nú þegar að glíma við krefjandi aðstæður Bogi segir það alvarlegt ef flugvirkjar samþykkja að fara í allsherjarverkfall. „Það er alvarlegt ef þetta verður samþykkt því að ef af verður þá fljótlega stöðvast okkar flugáætlun sem hefur verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem er nú að glíma við krefjandi aðstæður, mjög hátt eldsneytisverð og þess háttar.“ „En okkar viðskiptavinir og farþegar verða fyrir miklum truflunum og óþægindum ef af verður. Ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, stór og smá, og þar af leiðandi hagkerfið í heild sinni. Það eru mjög margir sem reiða sig á flugsamgöngur.“ segir Bogi. „Hægt að boða verkföll þrátt fyrir að kröfurnar séu langt umfram það sem gengur og gerist“ Hann segir að vinnumarkaðsmódelið hér á landi ekki ganga til lengdar og að það spili stóra rullu í baráttu við vexti og verðbólgu. Kröfur flugvirkja séu langt umfram það sem gerist á almennum vinnumarkaði og ekki sé hægt að ganga að þeim í ljósi aðstæðna. „Síðan er módelið þannig að það er hægt að boða verkföll þrátt fyrir að kröfurnar séu langt umfram það sem gengur og gerist og það sem að kerfið þolir.“ Flugvirkjar skoruðu á Icelandair í sumar um að hætta við áform um að flytja störf þeirra úr landi. Icelandair keypti nýlega hluta af starfsemi Play á Möltu. Heldur þú að þetta sé að hafa einhver neikvæð áhrif á viðræðurnar? „Ég veit það ekki en kaupin á Möltufélaginu eru kaup á 49% hlut og það eru engin árof um breytingar á viðhaldi þeirra véla sem eru að fljúga í leiðakerfi Icelandair til og frá Keflavík. Þannig að þau kaup, eins og við höfum talað um áður, snúast um að styrkja okkar innviði þannig að við getum vaxið og dafnað hér á Íslandi.“
Icelandair Kjaramál Vinnumarkaður Flug Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira