Erlent

Nemandi al­var­lega særður í stunguárás í skóla í Osló

Kjartan Kjartansson skrifar
Norskur lögreglumaður við skyldustörf. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki.
Norskur lögreglumaður við skyldustörf. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/EPA

Nemandi á táningsaldri er sagður alvarlega særður í stunguárás í framhaldsskóla í Osló. Grunaður árásarmaður er í haldi lögreglunnar. Báðir eru sagðir nemendur við skólann.

Tilkynning um árásina í Kuben-framhaldsskólanum barst lögreglu klukkan 12:12 að staðartíma í morgun. Fimm mínútum síðar var ætlaður árásarmaður í haldi lögreglu, að sögn norska ríkisútvarpsins.

Fórnarlambið var með meðvitund en er alvarlega sært, að sögn norska blaðsins VG. Bæði árásarmaðurinn og fórnarlambið eru eldri táningar.

Lögreglan segir að margir nemendur hafi orðið vitni að árásinni. Sjónarvottur segir VG að hann hafi séð árásarmanninn á hlaupum ásamt þremur öðrum með lögreglubíl á hælunum. Hann hafi reynt að fela sig en lögreglumenn hafi fundið hann fljótt.

Norska ríkisútvarpið segir Kuben-framhaldsskólann einn þann fjölmennasta í höfuðborginni.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×