Vill henda Wirtz út úr liðinu Valur Páll Eiríksson skrifar 21. september 2026 11:30 Carragher segir að Wirtz eigi að setjast á bekkinn. Samsett/Getty Knattspyrnuspekingurinn Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool, kallar eftir því að Andoni Iraola, þjálfari liðsins, setji Þjóðverjann Florian Wirtz á varamannabekkinn í næsta leik. Wirtz hefur farið hægt af stað í haust.
Carragher segir frammistöðu Wirtz gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær eina þá verstu síðan hann var keyptur dýrum dómum til Liverpool frá Leverkusen fyrir rúmu ári síðan. Carragher veltir því upp hvort vandamálið sé stærra en svo að Wirtz sé ekki í formi. „Þetta er ein slakasta frammistaða sem ég hef séð frá honum í Liverpool-treyjunni,“ segir Carragher í hlaðvarpi sínu. „Ég hef gagnrýnt þá staðreynd að hann hefur ekki náð tölunum,“ segir Carragher og vísar til marka og stoðsendinga Wirtz, eða öllu heldur skorts þar á. „En venjulega þegar þú horfir á Wirtz er hann snyrtilegur og lipur, hann heldur boltanum, það eru hlutir sem þér líkar. Hann kemur sér úr þröngum aðstæðum þar sem þú býst venjulega við að leikmaðurinn þinn tapi boltanum,“ segir Carragher og bætir við: „En ástæðan fyrir því að ég hef áhyggjur er sú að ég held ekki að Wirtz hafi verið í slöku formi síðan hann kom til Liverpool. Ég held í raun að það sem við erum að sjá sé það sem hann er.“ Wirtz sé því hreinlega ekki betri en raun ber vitni. Vonast er til að hann eigi mikið inni en Carragher hefur áhyggjur af því að hann standi alls ekki undir himinháum verðmiða. „Áhyggjuefnið varðandi Wirtz núna er að frammistaða hans hingað til, eða það sem hann hefur gefið Liverpool, er svo slakt. Við bjuggumst við því að hann myndi leiða Liverpool til annars deildartitils, að leiða Liverpool til sigurs í Meistaradeildinni,“ „Bilið sem hann þarf að brúa til að réttlæta það sem fólk bjóst við, ég held næstum að það sé of stórt. Þú kemst ekki þangað. Jafnvel þótt hann bæti sig aðeins og komist þangað, þá er það samt ekki það sem Liverpool hélt að þeir væru að fá.“
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjá meira