„Gaman að fara í svona úrslitaleiki“ Árni Gísli Magnússon skrifar 25. september 2026 21:28 Hildur var að vonum sátt eftir leikinn. Mynd/Fram Fram sótti 2-1 sigur norður yfir heiðar gegn Þór/KA í neðri hluta Bestu deildar karla og tryggði þar með áfram veru sína í Bestu deildinni að ári þegar ein umferð er eftir. Þór/KA þarf að bíða með örlög sín fram í lokaumferðina.
Hildur María Jónasdóttir, fyrirliði Fram, spilaði allan leikinn á miðjunni og var hæstánægð með að hafa tryggt sætið í Bestu deildinni. „Bara frábærar, gott að vera búin að tryggja þetta og fara ekki í eitthvað stress í síðasta leik. Við vissum að við gætum þetta og bara gott að klára þetta.“ Fram gat tryggt sæti sitt í Bestu deildinni með sigri og hagstæðum úrslitum í leik Vals og Víkings sem varð raunin þar sem jafntefli varð niðurstaðan þar. Hildur segir mikla spennu hafa ríkt innan liðsins fyrir leiknum í kvöld. „Það vara bara geggjað. Gaman að fara í svona úrslitaleiki og gaman að geta tryggt þetta svona og klárað þetta áður en að síðasti leikurinn var þannig það var bara mikil spenna fyrir þessum leik, það var bara geggjað.“ Fram liðið féll rosalega neðarlega á völlinn síðasta hálftímann eða svo og viðurkenndi Hildur að hafa verið smá áhyggjufull um að Þór/KA næði að skora jöfnunarmark. „Já svolítið, við hefðum alveg mátt vera búin að gera út um þennan leik í fyrri hálfleik en við eigum þetta til og okkur finnst gaman að hafa smá spennu í leiknum“, sagði Hildur létt í bragði. Gulrót að fella Val Fram mætir Val í síðasta leik tímabilsins. Valur er að berjast fyrir lífi sínu á meðan Fram er hólpið og kemur því liðið pressulaust inn í leikinn. „Bara spila fótbolta, njóta þess, hafa gaman og ætlum okkur auðvitað að taka sigur þar og enda með sem flest stig. Þannig bara njóta þess að spila fótbolta.“ Væri það gulrót að fella Val? „Það væri gulrót!“ Sagði Hildur og hló. Hildur var heilt yfir sátt með frammistöðu liðsins í dag. „Já ég er það. Eins og ég segi hefði ég verið til í að vera búin að klára þetta. Fáum þarna klaufalegt víti á okkur í fyrri hálfleik. Við hefðum alveg mátt vera búnar að klára gera út um þennan leik í fyrri hálfkeik bara 3-0 fannst mér en bara gott að taka sigur og gott að klára þetta þannig ég er bara sátt.“ Fram liðið fagnaði með stuðningsmönnum sínum undir flóðljósunum á VÍS vellinum eftir leikinn sem Hildi leiddist ekki enda að norðan sjálf. „Já geggjað. Ég er Húsvíkingur þannig að gott að fá ömmu og afa á leikinn og gaman að gera þetta með þeim“.
Besta deild kvenna Fram Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira