Atvinnulíf

For­stjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef...

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás,er gallharður Valsari og Liverpoolmaður. Í Reykjavíkurmaraþoninu segist hann hafa tekið einkunnarorð Valsmanna um að láta kappið bera fegurðina of bókstaflega. Næsta ár sé líklega skynsamlegra að taka kjörorð Liverpool til fyrirmyndar og ganga aldrei einsamall.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás,er gallharður Valsari og Liverpoolmaður. Í Reykjavíkurmaraþoninu segist hann hafa tekið einkunnarorð Valsmanna um að láta kappið bera fegurðina of bókstaflega. Næsta ár sé líklega skynsamlegra að taka kjörorð Liverpool til fyrirmyndar og ganga aldrei einsamall. Vísir/Anton Brink

Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég tek daginn snemma á mánudögum og föstudögum og vakna upp úr 6 og er mættur á æfingu í Laugum klukkan 7. Aðra morgna er ég seinna á ferðinni en oftast farinn út upp úr klukkan 8.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Þá morgna sem ég er ekki farinn á æfingu áður en aðrir í fjölskyldunni vakna fer af stað þrautþjálfuð rútína þar sem hver fjölskyldumeðlimur gegnir sínu hlutverki. Mitt hlutverk er að elda hafragrautinn, eiginkonan sér um kaffið og börnin sjá um nestið sitt fyrir daginn.“

Ef þú mættir bara klæðast einum lit það sem eftir er ævinnar, hver yrði fyrir valinu?

„Það væri að sjálfsögðu rauður, litur minna manna í Val og Liverpool. Í síðasta Reykjavíkurmaraþoni hljóp ég í góðum hópi samstarfsfólks í Styrkás samstæðunni til styrktar Gleym-mér-ei, styrktarfélagi sem konan mín kom að því að stofna ásamt fleirum.

Ég tók einkunnarorð Valsmanna líklega of bókstaflega um að láta ekki kappið bera fegurðina ofurliði. 

Tíminn minn í hlaupinu bar þess merki að kappið var lítið og stefnan á næsta ári er að taka kjörorð Liverpool meira til fyrirmyndar og ganga aldrei einsamall.“

Í fyrra hóf Styrkás að innleiða sérstaka aðferðafræði til að halda utan um reksturinn og lykilverkefni en þessi aðferðarfræði heitir  BOS360. Ásmundur segir aðferðafræðina nýtast vel til að ná markmiðum og árangurinn er gerður upp á þriggja mánaða fresti.Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Nú er haust vertíð hjá dótturfélögum Styrkás, sem eru Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta. Þar ber hæst að dekkjavertíðin er að hefjast hjá Kletti og þá vinnur Stólpi hörðum höndum að uppsetningu vinnubúða við Sigölduvirkjun. Samstæðan hefur komið að slíkum stærri verkefnum þar sem Stólpi útvegar vinnubúðir fyrir verktaka, Skeljungur annast eldsneytisdreifingu, Klettur sér um að þjónusta vinnuvélar á verkstað og Hreinsitækni sér um úrganginn.

Við erum þessa dagana einnig á fullu að vinna viðskiptaáætlun fyrir næsta ár og þótt ytra umhverfi sé um margt snúið þá sjáum við mörg sóknarfæri. Síðast en ekki síst er svo vaxandi þungi í undirbúningi fyrir skráningu Styrkás í kauphöll á næsta ári en við hlökkum til að taka skrefið inn í kauphöll þar sem við teljum að við getum orðið góð viðbót í flóruna og njótum ákveðinnar sérstöðu sem öflugt þjónustufyrirtæki við uppbyggingu atvinnulífs og innviða.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Við notum aðferðafræði BOS360 til að halda utan um reksturinn og lykilverkefnin sem við erum að vinna að hverju sinni. 

Við hófum að innleiða þessa aðferðafræði í fyrra sem hefur nýst vel til að ná markmiðum okkar til lengri og skemmri tíma en stjórnendahópurinn gerir upp árangurinn á þriggja mánaða fresti. 

Allt utanumhald fer fram í kerfi sem heitir Ninety. Outlook er svo auðvitað ómissandi við að halda utan um daginn.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Oftast í kringum klukkan 11 á kvöldin og reyni yfirleitt að lesa eitthvað fyrir svefninn. Er loksins að pæla mig í gegnum ævisögu Elon Musk sem er mjög áhugaverð þótt hann sé ekki endilega fyrirmynd á öllum sviðum!“


Tengdar fréttir

„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!”

Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni.

Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×